Fara í efni
Menning

Karlakórinn kveður Valmar á vortónleikum

Karlakór Akureyrar - Geysir á æfingu í Leifshúsum á Svalbarðsströnd í vikunni.

Vortónleikar Karlakórs Akureyrar Geysis verða í Akureyrarkirkju næstkomandi laugardag, 9. maí og hefjast kl. 17:00. Stjórnandi kórsins undanfarin ár, Valmar Väljaots, er að flytja á Sauðárkrók, eins og akureyri.net greindi frá á dögunum, þannig að þetta verða kveðjutónleikar hans.

Efnisskráin er fjölbreytt og skemmtileg að sögn Svavars Alfreðs Jónssonar, formanns karlakórsins. „Við höfum verið að æfa þetta í vetur og sum lögin enn lengur,“ segir Svavar Alfreð. Meðfylgjandi myndir voru teknar á æfingu kórsins í vikunni, í Leifshúsum á Svalbarðsströnd. „Þar hefur staðarhaldari, Stefán Tryggvason, verið að útbúa glæsilega aðstöðu til allskonar listviðburða. Hann var svo elskulegur að bjóða okkur að prófa staðinn - og hellti upp á könnuna fyrir okkur í pásunni,“ segir Svavar Alfreð.

Valmar flytur – ráðinn kennari á Króknum