Fara í efni
Fréttir

Valmar flytur – ráðinn kennari á Króknum

Valmar Väljaots þegar hann kom fram ásamt Karlakór Akureyrar - Geysi, sem hann stjórnar á Hótel Akureyri fyrir jólin. Mynd: Skapti Hallgrímsson

Tónlistarþúsundþjalasmiðurinn Valmar Väljaots er á förum frá Akureyri, ásamt fjölskyldu sinni. Hann flytur á Sauðárkrók en þar hefur hann verið ráðinn sem kennari við Tónlistarskóla Skagafjarðar.

Eins og fram kom í fréttum fyrir áramót var Valmari sagt upp sem organista í Glerárkirkju þegar hann vildi ekki sætta sig við að starfshlutfall hans yrði skert og lýsti yfir óánægju með hvernig staðið var að þeim málum. Valmar segist spenntur fyrir að skipta um umhverfi því hann hafi ekki getað hugsað sér að sinna áfram öðrum verkefnum hér í bænum í skugga þess ósættis sem skapaðist við brotthvarf hans frá Glerárkirkju en Valmar hefur m.a. verið stjórnandi hjá Karlakór Akureyrar - Geysi (KAG) og Kvennakór Akureyrar (KVAK). Hann mun láta af störfum fyrir kórana við flutningana vestur.

Valmar á tónleikum Hvanndalsbræðra; í fjarska er Sumarliði Helgason bassaleikari. Mynd: Sindri Swan

Ekki verið í vandræðum með að aðlagast hingað til

„Elín konan mín er að hætta hjá Dekkjahöllinni og hún hefur aldrei búið annars staðar en á Akureyri, þannig að þetta er fínt tækifæri fyrir okkur til að hreinsa orkuna og breyta til. Mér þótti vænt um kennsluna áður en ég kom til Akureyrar, þannig að ég er ekki að fara að gera neitt sem ég þekki ekki,“ segir Valmar í spjalli við akureyri.net en hann starfaði við tónlistarkennslu m.a. á Húsavík, eftir að hann flutti til Íslands fyrir rúmum 30 árum. Flutningarnir leggjast vel í hann. „Sama hvar ég hef verið þá hef ég hingað til ekki verið í vandræðum með að aðlagast á nýjum stöðum og er bara bjartsýnn á framhaldið,“ segir Valmar og bætir við að hann sjái jafnvel tækifæri til að draga aftur fram spilin og keppa í bridds en það áhugamál hefur svolítið verið útundan hjá honum síðustu árin vegna starfa hans með kórunum. Og við erum sammála um að golfvöllurinn á Króknum sé prýðilegur!

Valmar hefur eins og kunnugt er verið með mörg járn í tónlistareldinum og er m.a. meðlimur í gleðisveitinni Hvanndalsbræðrum. Hann segist hafa tjáð félögum sínum þar að hann ætli sér líklega ekki að keyra frá Skagafirði á æfingar. „Ég ætla fyrst að finna mína rútínu í Skagafirði og svo sjáum við til,“ segir hann og bætir við að hann sé frekar að leitast eftir að róa rútínuna frekar en hitt. Í ljós kemur í spjalli okkar að auk kennslunnar er líklegt að fleiri tónlistartengd tækifæri muni koma upp í hendurnar á Valmari í Skagafirði, þannig að hann er ekki smeykur um að hafa ekki nóg að gera þar.

Síðustu tónleikar kóranna undir stjórn Valmars framundan

Karlakór Akureyrar - Geysir verður með vortónleika sína í Akureyrarkirkju laugardaginn 9. maí næstkomandi og á mæðradaginn, daginn eftir, mun KVAK syngja í kirkjunni. Þetta verða síðustu tónleikar kóranna á Akureyri með Valmar sem stjórnanda. „En svo er ég líka að stjórna kirkjukór Glerárkirkju og við verðum með okkar síðustu tónleika í Hveragerði,“ segir Valmar og útskýrir að hann sé að fara suður yfir heiðar með KVAK á Landsmót íslenskra kvennakóra í júní. „Og þá kemur kirkjukórinn líka suður og við höldum okkar tónleika í Hveragerði. Og svo er ég búinn og fer að hugsa um sumarið og flutningana,“ segir Valmar Väljaots að lokum.