Menning
Hlýjan, þrótturinn og rokkskáldið góða
03.06.2026 kl. 19:30
Mynd: Skapti Hallgrímsson
„Góð rokktónlist brúar kynslóðabil. Nítján ára dóttir mín sagði að þessi kvöldstund hafi verið mögnuð og ég var ennþá uppnuminn þegar ég vaknaði í morgun,“ segir Ragnar Hólm Ragnarsson í pistli sem hann skrifar fyrir akureyri.net um tónleika bandarísku listakonunnar Patti Smith í menningarhúsinu Hofi á Akureyri í gærkvöldi.
Patti Smith er 79 ára og þykir einn áhrifamesti listamaður sinnar kynslóðar. Hún heillaði tónleikagesti sem troðfylltu Hambraborgarsal Hofs. „Persónutöfrar söngkonunnar eru ótvíræðir, söngröddin ennþá kraftmikil og örugg, brosið vingjarnlegt og stundum næstum feimnislegt,“ skrifar Ragnar Hólm.
Pistill Ragnars Hólm: Takk fyrir Patti Smith