Fara í efni
Menning

Framleiðandi Game of Thrones heiðursgestur

Heiðursgestur alþjóðlegu kvikmyndahátíðarinnar, Northern Lights - Fantastic Film Festival,  á Akureyri síðar í mánuðinum, verður Christopher Newman. Hann framleiddi m.a. sjónvarpsþáttaraðirnar Game of Thrones og Lord of the Rings - Rings of Power.

Newman hlýtur heiðursverðlaun hátíðarinnar, sem nú er haldin í fyrsta sinn, fyrir framlag sitt til til fantastic kvikmyndaverka, eins og þau eru kölluð á ensku; undir þá tegund falla myndir unnar í töfraraunsæi og allt er viðkemur því sem er á mörkum þess raunverulega; draugar, huldufólk, þjóðsögur og fantasíur af ýmsu tagi.

Christopher Newman tekur einnig þátt í pallborði og situr í dómnefnd ásamt leikstjórunum Ingu Lísu Middleton, sem einnig tekur þátt í pallborði, og Erlingi Óttari Thoroddsen. Dómnefnd velur bestu fantastic myndina sem hlýtur í verðlaun 1000 evrur, andvirði um 150.000 króna, og eina milljón króna í tækjaúttekt hjá KUKL.

Frétt Akureyri.net um hátíðina fyrr í dag: Ný, alþjóðleg kvikmyndahátíð