Fara í efni
Menning

Drepfyndin óvissuferð Leikfélags Hörgdæla

„Það er ekki á hverjum degi sem hægt er að upplifa æsispennandi morðgátu og litskrúðugan hóp mjög ólíkra kvenna (og sakborninga) á norðlenskri kvöldstund. En nú er það hægt, þar sem Leikfélag Hörgdæla færir okkur glæpsamlega gleðileikinn Átta konur að Melum, og undirrituð fór í leikhús.“ 

Þannig hefst pistill Rakelar Hinriksdóttur sem akureyri.net birtir í dag. Rakel er afar ánægð með uppsetninguna: „Átta konur er margslungið, drepfyndið og fyrst og fremst skemmtilegt verk. Leikfélag Hörgdæla má vera mjög stolt af þessari sýningu!“

Pistill Rakelar: Drepfyndin óvissuferð hjá Leikfélagi Hörgdæla