Fara í efni
Menning

Aron Einar hættir með landsliðinu í haust

Aron Einar Gunnarsson í einum allra eftirminnilegasta landsleik ferilsins, þegar Ísland sigraði England 2:1 á Evrópumótinu í Frakklandi í júní 2016. Mynd: Skapti Hallgrímsson

Aron Einar Gunnarsson, fyrrverandi landsliðsfyrirliði í knattspyrnu, tilkynnti í dag að leikir Íslands í Þjóðadeildinni þetta haustið verði hans síðustu með landsliðinu. Hann er 37 ára, fæddur 22. apríl 1989.

Aron á 110 leiki að baki með A-landsliðinu en annar Akureyringur, Birkir Bjarnason, tók á sínum tíma þátt í 113 leikjum. Komi Aron við sögu í fjórum af leikjunum sex slær hann því met Birkis.

Aron tilkynnti ákvörðun sína með færslu á Instagram:

Ég átti mér draum … sem ég fékk að lifa

Fyrsti leikurinn minn í treyjunni bláu, fyrsta markið mitt, fyrsti leikurinn með fyrirliðabandið, fyrsta stórmótið sem ég fékk að upplifa ... alla þessa upplifun og allar þessar minningar sem ég á eftir að rifja upp og njóta alla mína ævi og segja börnunum og barnabörnunum frá um ókomna tíð.

Ég hef gefið líf mitt og sál fyrir landið mitt í 18 ár og landið hefur gefið mér orku til baka, nú er kominn tími til að skilja við. Þjóðadeildin þetta haustið verður mitt síðasta mót í treyjunni bláu. Við ætlum að leggja alla okkar orku í þessa leiki og við ætlum að vinna. Fyrir Ísland.

Þetta eru leikir Íslands í C-deild Þjóðadeildarinnar í haust:

  • 26. september: Ísland - Eistland
  • 29. september: Lúxemborg - Ísland
  • 3. október: Ísland - Búlgaría
  • 6. október: Eistland - Ísland
  • 13. nóvember: Búlgaría - Ísland
  • 16. nóvember: Ísland - Lúxemborg