Fara í efni
Menning

Sigurinn gefur okkur sjálfstraust og meiri ró

Hallgrímur Jónasson þjálfari KA glaður í bragði þegar skammt var til leikskoka í kvöld. Mynd: Skapti Hallgrímsson

„Við vissum að það yrði mikill slagur í kvöld, eins og alltaf þegar þessi lið mætast og Þórsarar eru góðir í að pressa með háu orkustigi. Leikurinn var því lokaðri í fyrri hálfleik. Þú þarft að taka færin þín og við vorum dálítið óheppnir í fyrri hálfleik þegar boltinn small tvisvar í þverslánni,“ sagði Hallgrímur Jónasson, annar þjálfara KA, við akureyri.net eftir sigurinn á Þór, 3-0, í Bestu deildinni á nýja KA-vellinum í kvöld.

„En við vissum að þetta myndi opnast í seinni hálfleiknum og mér fannst við spila vel, við náðum að skora þrjú mörk og skapa fleiri færi. Mér fannst strákarnir fylgja leikplaninu mjög vel og man ekki eftir mörgum tilvikum þar sem Þórsarar náðu að ógna okkur. Þeir eru hins vegar góðir í að senda langa bolta fram og elta þá, og fá fullt af hornum, og þar geta tilviljanir ráðið hvað gerist. En við stóðum það vel af okkur og mér finnst þetta vera verðskuldaður sigur hjá KA í kvöld,“ sagði Hallgrímur.

Ekkert mark hafði verið skorað í þremur leikjum liðanna síðan Hallgrímur Mar Steingrímsson skoraði sigurmark KA undir lok fyrsta leiks liðanna í vor og spurningin var því hvort liðið myndi brjóta ísinn. Hallgrímur þjálfari tók vel undir það.

Stór og samhent KA-fjölskylda

„Já, við vissum að fyrsta markið í þessum leik yrði afar mikilvægt og það var því svekkjandi að sjá boltann fara tvisvar í þverslána í fyrri hálfleik. En það kom, og það er æðislegt að hafa náð að landa þessum sigri. Hérna voru fjölmargir sjálfboðaliðar hjá KA búnir að græja allt sem þurfti að gera þannig að völlurinn væri klár fyrir okkur, hérna mættu rúmlega 1.900 manns og stór hluti af því KA-fólk, ásamt því að einhverjir þorðu ekki á leikinn vegna tauganna! Þetta er bara æðislegt og maður sér best þegar á bjátar í KA hversu stór og samhent þessi fjölskylda er. Það standa allir á bak við okkur og það er æðisleg tilfinning.“

Skipti ekki öllu máli að komast upp fyrir Þór fyrir landsleikjahléið og leikina þrjá sem eftir eru í október?

„Jú, algjörlega. Við töpuðum 3-0 fyrir FH í leik þar sem mér fannst að við hefðum átt að ná í stig og þurftum því að bæta okkur, og það gerðum við í dag. Þetta er gott skref í þá átt sem við viljum en við erum alls ekki sloppnir. En þessi sigur gefur okkur sjálfstraust og meiri ró fyrir síðustu þrjá leikina. Við ætlum að ná okkar markmiði sem er að halda okkur í deildinni. Þar þurfum við að taka einn leik í einu, það er leiðinleg klisja, en eitt er víst, að þegar við mætum næstu andstæðingum þá á að sjást alls staðar að leikurinn þýði meira fyrir okkur en þ“á.

Eiður búinn að koma mjög flottur inn

Hallgrímur fékk Eið Smára Guðjohnsen til liðs við sig í þjálfarateymið 19. ágúst og leikurinn í kvöld var sá fimmti sem þeir stjórna saman. Stigin eru núna orðin sjö á þeim tíma. Aðspurður um þennan liðsauka sagði Hallgrímur að samvinna þeirra væri með mestu ágætum.

„Þetta er æðislegt. Ég þekkti hann ágætlega frá okkar tíma með landsliðinu og ég vissi að ef við fengjum hann til að koma norður myndi hann hafa jákvæð áhrif á hópinn. Svo veit maður aldrei fyrirfram hvernig svona gengur, en þetta er búið að ganga frábærlega. Við erum með svipaða sýn á fótboltann og hann er með gríðarlega sterka nærveru, geysilega mikla reynslu og nýtur mikillar virðingar, og hann er búinn að koma mjög flottur inn.

Nýr þjálfari kemur alltaf með eitthvað nýtt á æfingum, sem gefur meiri ferskleika. Þetta er algjör draumur, ég vissi að það yrði einhver gagnrýni á það fyrirkomuleg að vera með tvo þjálfara en okkur er alveg sama. Við ætlum að gera þetta saman og gera þetta vel, koma liðinu út úr þessum vandræðum, og þetta var gott skref í áttina að því.“