Fara í efni
Menning

Á leið inn í endalausa verslunarmannahelgi

Hólmkell Hreinsson amtsbókavörður til þriggja ára áratuga lætur af störfum í sumar.

„Vilt þú leiða eitt mikilvægasta menningar- og þekkingarsafn landsins inn í framtíðina?“ Þetta er yfirskrift starfsauglýsingar þar sem Akureyrarbær auglýsir laust til umsóknar starf forstöðumanns Amtsbóka- og Héraðsskjalasafnsins á Akureyri.

Í auglýsingunni segir ennfremur að um sé að ræða lykilstarf fyrir metnaðarfullan leiðtoga sem vill hafa raunveruleg áhrif á miðlun þekkingar, varðveislu menningararfs og þróun nútímalegrar þjónustu fyrir samfélagið. Enda þekkja bæjarbúar það vel hversu fjölbreytt og líflegt starf fer fram innan veggja safnsins og ef einhver heldur að þar séu bara geymdar rykfallnar bækur þá þyrfti sá hinn sami að drífa sig í heimsókn.

Lárus Zophoníasson, til vinstri, gegndi starfi amtsbókavarðar næstur á undan Hólmkeli Hreinssyni, í um aldarfjórðung og Davíð Stefánsson, skáld frá Fagraskógi, til hægri, í álíka langan tíma um miðja síðustu öld.

Tveir hafa gegnt stöðunni síðustu 55 ár

Að birta auglýsingu um stöðu amtsbókavarðar, eins og embættið hefur oftast verið kallað, er síður en svo hversdagslegur viðburður. Núverandi amtsbókavörður er Hólmkell Hreinsson og hann tók við stöðunni af Lárusi Zophoníassyni árið 1996. Lárus hafði þá verið amtsbókavörður í um aldarfjórðung, þannig að þeir tveir eiga samanlagt ríflega hálfa öld að baki í stólnum. Fleiri einstaklingar hafa verið lengi í embætti, til dæmis þjóðskáldið Davíð Stefánsson frá Fagraskógi sem var amtsbókavörður í um aldarfjórðung rétt fyrir miðja síðustu öld.

Starfið hlýtur því að vera býsna skemmtilegt og Hólmkell fráfarandi amtsbókavörður staðfestir það. „Ég hef ennþá rosalega gaman af þessu starfi,“ segir hann í samtali við akureyri.net. „Það er bara svo margt annað sem er gaman líka,“ bætir hann við og við erum sammála um að nauðsynlegt sé að skapa tíma fyrir allt sem er skemmtilegt. Aðspurður segist hann vera á leiðinni á eftirlaun en Hólmkell varð nýlega 65 ára.

Hólmkell Hreinsson, amtsbókavörður, og Hrönn Björgvinsdóttir verkefnastjóri á Amtsbókasafninu, bregða á leik, „vopnuð“ plokkstöngum, kökuformi og lautarferðakörfu. Myndin birtist með frétt daginn sem vefmiðillinn akureyri.net var endurvakinn í nóvember 2020, með frétt um að safnið hefði bryddað á nýjungum ári á undan, m.a. að lána fólki ýmislegt annað en bækur. Mynd: Skapti Hallgrímsson.

Endalaus verslunarmannahelgi framundan!

Hólmkell hóf störf við Amtsbókasafnið árið 1989 og tók síðan við stöðu amtsbókavarðar af Lárusi Zophaníassyni árið 1996, eins og áður sagði. Að láta gott heita núna er ekki algjör tilviljun. „Ein af ástæðunum fyrir því að ég er að hætta núna í sumar eru að þá eru akkúrat liðin 30 ár síðan ég tók við,“ segir Hólmkell. „Mér er mjög í mun að verða ekki myllusteinn um háls stofnunarinnar, ég vil hætta á meðan ég er í fullu fjöri,“ segir hann og segist hafa fulla trú á því að ungt og sprækt fólk sé til í að taka við keflinu.

Formleg starfslok verða í lok júlí og 1. ágúst er því fyrsti dagur þriðja æviskeiðsins, segir Hólmkell. „Þannig að ég er að fara inn í endalausa verslunarmannahelgi,“ segir hann kankvíslega.

Listi yfir helstu verkefni nýs amtsbókavarðar – eða forstöðumanns – í starfsauglýsingunni er langur og ljóst að um lifandi og krefjandi starf er að ræða. Þar að auki fagnar Amtsbókasafnið 200 ára afmæli í vor og því þarf að sjálfsögðu að gera viðeigandi skil.