Fara í efni
Mannlíf

Weightless í flutningi Birkis – MYNDBAND

Birkir Blær syngur Weightless, þriðja og síðasta lagið í úrslitaþætti Idol. Ljósmynd: Guðmundur Svansson.

Birkir Blær Óðinsson, sem sigraði í sænsku Idol söngkeppninni á sjónvarpsstöðinni TV4 á föstudagskvöldið, flutti þrjú lög í úrslitaþættinum.

Þriðja og síðasta lagið var Weightless, sem samið var sérstaklega fyrir keppnina og þau sungu bæði, Birkir og sænska stúlkan, Jacqline Mossberg Mounkassa. 

Smellið hér til að sjá og hlýða á flutning okkar manns. 

Lag númer tvö í röðinni var soul-smellurinn frábæri It‘s A Man‘s, Man‘s, Man‘s World sem Bandaríkjamaðurinn James Brown gerði gríðarlega vinsælt fyrir margt löngu. Smellið hér til að horfa og hlýða á Birki flytja lagið.

Fyrsta lagið hans í úrslitaþættinum var All I ask, sem breska söngkonan Adele gerði vinsælt fyrir nokkrum árum. Hér er hægt að sjá hann og heyra.