Fara í efni
Mannlíf

Viðburðir oft það sem fólk sleppir er kreppir að

HS Kerfi á Akureyri sér um viðburði út um allt land. Þessi mynd frá hátíðinni Sátan á Stykkishólmi en HS kerfi kemur árlega að henni. 

Hinrik Svansson, eigandi HS Kerfa á Akureyri, sem er stærsta tækjaleiga landsbyggðarinnar þegar kemur að viðburðahaldi, segir reksturinn hafa byrjað sem tilviljun út frá heimasmíðuðu DJ-búri. Í dag sinnir HS Kerfi verkefnum víða um land, með fjóra flutningabíla, stóran hóp verktaka og þá reglu að skulda ekki búnað.

  • Þetta er annar hluti viðtals við Hinrik um sögu HS kerfa. Fyrri hlutinn birtist í gær.

Í GÆR  STÆRSTA TÆKJALEIGAN Á LANDSBYGGÐINNI


Reglan að skulda ekki búnað

Frá því að HS Kerfi var stofnað hefur fyrirtækið vaxið og dafnað, ef frá er talinn covid-tíminn sem vissulega setti mikið strik í reikninginn, enda voru allir viðburðir felldir niður á þeim tíma og verkefnastaðan því engin. „Það sem hjálpaði mér mest í gegnum covid var að ég skuldaði engan búnað og var með lág föst útgjöld. Þegar verkefnin duttu niður, þá duttu útgjöldin nánast niður líka, því reglan hjá mér hefur einfaldlega verið sú að fyrirtækið skuldar hvorki búnað né bíla. Það skuldar bara í húsnæði,“ segir Hinrik.

Þó að covid-tíminn hafi verið krefjandi segir Hinrik að covid hafi líka styrkt reksturinn að því leyti að samkeppnisaðilum hafi fækkað og markaðssvæðið að einhverju leyti breyst. Þá nýtti hann líka covid-tímann vel því hann flutti suður í ár og fór í hljóðtækninám í Tækniskólanum. Segir að þó að hann hafi verið búinn að vinna í bransanum í mörg ár hafi námið bæði styrkt þekkingu og tengslamyndun í litlum geira. „Þetta er bransi sem finnur strax fyrir samdrætti því viðburðir eru oft það fyrsta sem fólk sleppir þegar kreppir að. En af því ég hef byggt reksturinn upp af varfærni og skulda lítið, þá sef ég nokkuð rólega. Og ef allt fer á versta veg þá hef ég alltaf mína rafvirkjamenntun og það vantar alltaf rafvirkja.“

Hinrik, eigandi stærstu tækjaleigu landsins á landsbyggðinni, HS Kerfi. Fyritækið er staðsett á Akureyri en sinnir verkefnum um land allt. 

Flytur sinn búnað á milli landshluta

Þó að kveikjan að HS Kerfi hafi í upphafi verið sú hugsun að draga úr flutningi á búnaði norður, þá er búnaður fyrirtækisins samt á stöðugri ferð því HS Kerfi er með fjóra flutningabíla og flytur sjálft sinn búnað á milli landshluta. „Hugmyndafræðin er einföld: það þarf hvort sem er mannskap í uppsetninguna, og með því að keyra allt sjálfir á staðinn er tryggt að búnaðurinn komi á réttum tíma og skili sér til baka á réttum tíma,“ segir Hinrik sem viðurkennir að þetta geti þó alveg verið snúið, sérstaklega yfir vetrarmánuðina þegar allra veðra er von. Það hafi þó aldrei neitt stórvægilegt klikkað þó að oft hafi staðið tæpt og stundum hefur hann eða hans menn þurft að leggja á sig töluvert lengri akstur til að komast hjá vegalokun vegna slæms veðurs og færðar. Þá segist Hinrik líka oft senda búnað suður til samstarfsaðila, eins og Luxor og HljóðX. „Þetta er í raun búið að snúast við miðað við hvernig þetta var hér áður fyrr þegar allur búnaður var alltaf að koma norður að sunnan.“

HS Kerfi kemur nálægt flestum viðburðum á Akureyri. Þessi mynd er tekin á Akureyrarvöku á síðasta ári. 

Veðrið getur sett strik í reikninginn

Stórir viðburðir eru oft haldnir í íþróttahúsum sem þá þarf að breyta í veislusal eða tónleikastað á aðeins nokkrum klukkutímum. Þessi íþróttahús eru oftast þéttbókuð og því þarf hraðar hendur við að reisa svið, koma upp ljósabúnaði, gera hljóðprufur og skreyta. Sama gildir með fráganginn því íþróttaæfingar eru oft rétt á eftir stórum veisluhöldum. Það gengur því oft mikið á og stundum hlýtur eitthvað að klikka, eða hvað? Hinrik svarar því til að hlutirnir gangi oftast vel. Það sé aðallega veðrið sem setji stundum strik í reikninginn á viðburðum utandyra, vindur getur t.d. tekið í tjöld og feykt niður hljóðkerfum. Eitt klúður, ef klúður skyldi kalla, er Hinriki þó minnisstætt sem átti sér stað á Akureyrarvöku árið 2023. „Við vorum búnir að stilla upp og allt var klárt og við ætluðum bara rétt að fá okkur aðeins að borða áður en tónleikarnir byrjuðu. Það var rigning og þegar við komum til baka hefur líklega dropað inn á mixerinn sem fór að slökkva og kveikja á sér tíu mínútum áður en dagskráin átti að hefjast. Við náðum engu sambandi við mixerinn en það sem bjargaði okkur var að við áttum nákvæmlega eins mixer í bíl sem hafði verið í verkefni fyrr um daginn og var stutt frá. Bilaði mixerinn var rifinn úr sambandi og við rétt náðum að skipta yfir í vara mixer áður en fyrsti listamaðurinn sté á svið. Ég held að stressstigið hafi sjaldan verið jafn mikið,“ rifjar Hinrik upp.

Rottweiler tónleikar framundan á Reyðarfirði. HS Kerfi getur breytt hvaða húsnæði, túni eða torgi í flottan stað fyrir viðburð með ljósum, sviði og öllu tilheyrandi. 

Auknar kröfur hjá hljómsveitum

Spurður hversu stór gigg HS Kerfi geti tekið að sér segist hann eiga flest sem til þurfi til að breyta hvaða húsnæði, torgi eða túni sem er, í frambærilegan viðburðarstað. Hins vegar ráðist stærðin ekki alltaf af því hversu mikinn búnað hann eigi. Stundum stoppa hlutirnir á því rafmagni sem í boði er, eða burðarþoli þaksins þar sem viðburðurinn er haldinn. Hinrik nefnir sem dæmi að þegar verslunarmannahelgin var á Ráðhústorginu hafi rafmagn á torginu ekki dugað fyrir stærri uppsetningar og til þess að stækka viðburðinn hafi þurft að finna aðra staðsetningu. Þá segir hann að kröfur hljómsveita hafi aukist. Áður gátu hljómsveitir deilt monitor en nú séu kröfur meiri og margir vilji sérlausnir sem krefjist meira rafmagns.


HS Kerfi er til húsa í Týsnesi en sinnir öllu landinu í tengslum við viðburðarhald.  

Langar ferðir út á land

Hinrik er eini starfsmaðurinn á launaskrá hjá HS Kerfi, en hann vinnur með stórum hópi verktaka. Hver fari í hvert verkefnið ráðist af því hvert sé farið og hversu stórt verkefnið sé. Oftast er hann þó sjálfur með í för. Þetta þýðir að hann er oft í burtu þrjá daga í viku. Hinrik hrósar sambýliskonu sinni, Anítu Hrund Hjaltadóttur og segir hana ótrúlega skilningsríka hvað starfið hans varðar. Stundum komi hún og fjögurra ára sonur þeirra, Bergsteinn Nói, líka með í ferðir út á land en sonurinn hefur gaman af stóru bílunum og búnaðinum.

Venjuleg vika hjá fyrirtækinu er oftast þannig að miðvikudagur fer í undirbúning, fimmtudagur og föstudagur oftast í akstur, laugardagur í framkvæmd verkefnis, sunnudagur í frágang og mánu- og þriðjudagar annað hvort í tölvuvinnu og eða í viðhald á búnaðinum. Þar kemur rafvirkjamenntun sterkt inn og Hinrik nær yfirleitt að gera við búnaðinn sjálfur. „Ferðalögin eru stór hluti af vinnunni, þetta eru oft langar keyrslur við erfiðar aðstæður, þar sem maður er alltaf að keppa við tímann. En þetta er líka hluti af ævintýrinu; í bílnum fer maður yfir verkefnin, skipuleggur helgina og yfirleitt reddast hlutirnir, jafnvel þegar allt virðist vera á mörkunum,“ segir Hinrik.

Allt klárt fyrir árshátíð MA árið 2023.

Vill stöðugan rekstur frekar en meiri stækkun

Aðspurður um framhaldið þá segir hann að dagatalið sé nærri fullt út árið, hver viðburðurinn reki annan. Þá er hann að koma á fót vefsíðu þar sem fólk getur sjálft séð verð og valkosti fyrir minni viðburði og pantað sjálft á netinu t.d. reykvél, diskókúlu, veislutjöld og slíkt. Á þennan hátt nær hann að þjónusta minni aðila betur og minnka álag vegna endurtekinna spurninga um einstaka hluti. „Ég sé framtíðina þannig að reksturinn haldist stöðugur frekar en að hann stækki mikið. Ég er í raun komin í pattstöðu eins og er og ef ég ætla mér að stækka meira þá þarf ég að færa mig meira yfir í verkefni fyrir sunnan og það er ég ekki spenntur fyrir. Markmiðið er frekar að halda jafnvægi milli vinnu og fjölskyldu, bæta ferla og gera hlutina einfaldari, frekar en að elta stöðugan vöxt,“ segir Hinrik að lokum.

HVER ER HINRIK SVANSSON?

  • Hinrik er 32 ára Akureyringur. Foreldrar hans eru Svanur Kristinsson, ættaður úr Hrísey, en hann vann annars vegar hjá Rafeyri og hins vegar tæp 30 ár hjá Útgerðarfélagi Akureyringa. Móðir Hinriks er Hulda Hermannsdóttir, ættuð frá Vopnafirði, en hún starfar á gjörgæsludeild Sjúkrahússins á Akureyri.
  • Hinrik er þríburi og á tvo bræður þá Hafstein, sem er byggingarverkfræðingur og búsettur á Suðurlandi, og Hauk sem er læknir og sálfræðingur og býr í Danmörku.
  • Hinrik tók stúdentinn og rafvirkjann í VMA en síðar bætti hann einnig við sig hljóðtækninámi í Tækniskólanum í Reykjavík. Hinrik er í sambúð með Anítu Hrund Hjaltadóttur og saman eiga þau soninn Bergsteinn Nóa. Þau eiga og reka saman HS Kerfi, stærstu tækjaleigu á landsbyggðinni í tengslum við viðburðarhald.