Fara í efni
Mannlíf

Stærsta tækjaleigan á landsbyggðinni

Hinrik Svansson byrjaði að sinna viðburðarhaldi í frístundum en það varð svo hans aðalvinna þegar hann stofnaði HS Kerfi árið 2017.

Þorrablót hafa verið í fullum gangi vítt og breitt um landið undanfarið en það sem færri vita er að fyrirtækið HS kerfi á Akureyri kemur nálægt stórum hluta þeirra. Og ekki bara þorrablótum, heldur bæjarhátíðum og alls konar viðburðum um land allt.

„Það tekur eitt við af öðru, í haust voru það árshátíðarnar, nú eru það þorrablótin, svo eru það útskriftirnar og bæjarhátíðarnar,“ segir Hinrik Svansson, eigandi HS kerfis, þar sem hann tekur á móti blaðamanni akureyri.net í húsnæði fyrirtækisins að Týsnesi 14. Þar er Hinrik í óðaönn að undirbúa gigg helgarinnar, þorrablót á Austurlandi. „Það skemmtilegasta við vinnuna er að vera sífellt á nýjum stöðum og sjá venjulegt húsnæði breytast í veislusali á örfáum klukkutímum. Það eru ævintýri sem fylgja því að vera alltaf á ferðinni og enginn dagur er eins,“ segir Hinrik sem er að meðaltali á ferðinni þrjá daga vikunnar.

Verkefni víða um land

Það er í mörg horn að líta þegar verið er að skipuleggja viðburð frá grunni en HS kerfi á í fórum sínum búnað fyrir allar stærðir af viðburðum, sviðsbúnað, tjöld, ljósabúnað, hljóðkerfi og allt hitt sem til þarf til að halda stóra sem smáa viðburði. Fyrirtækið er í dag stærsta tækjaleigan á landsbyggðinni í þessum geira og sinnir ekki bara verkefnum úti á landi heldur líka á höfuðborgarsvæðinu. Það hefur t.d. séð um tónlistarhátíðina Sátan í Stykkishólmi, árshátíð Mosfellsbæjar og aðalfund Skólastjórafélags Íslands sem fór síðast fram á Selfossi. Á Akureyri kemur fyrirtækið að stærri verkefnum á borð við árshátíð Menntaskólans í Íþróttahöllinni, árshátíð Akureyrarbæjar og Akureyrarvöku.

Verkefni HS Kerfa eru bæði stór og smá. Á jólatorginu í desember sá HS Kerfi um ljós, hljóðkerfi og tjald fyrir skemmtikrafta. 

DJ-búrið upphafið

Þegar Hinrik er inntur eftir því hvernig þetta hafi allt saman byrjað segir hann að það hafi í raun verið hálfgerð tilviljun. „Ég hef einhvern veginn alltaf heillast af rafmagni en upphaflega stefndi ég á hönnun og tæknilega stýringar- og rafmagnsvinnu fremur en viðburðabransann,“ segir hann. Eftir útskrift sem stúdent og rafvirki úr VMA 2015 leiddi hins vegar eitt af öðru. Hann fór að vinna hjá Rafmönnun en var alltaf í ýmsum verkefnum tengdum viðburðarhaldi um helgar. Þessi verkefni undu síðan upp á sig, ferðirnar út á land urðu lengri og búnaðurinn meiri. Í janúar 2017 var reksturinn formlega stofnaður og í dag sinnir HS kerfi verkefnum víða um land, með fjóra flutningabíla, stóran hóp verktaka og þá reglu að skulda ekki búnað.

DJ búrið sem allt byrjaði á. Það var smíðað árið 2014. Búrið er ekki til lengur. 

„Þetta byrjaði allt í samstarfi við Stefán Trausta Njálsson sem ég kynntist í VMA. Hann var mikið að vinna í kringum viðburði í Sjallanum. Á þeim tíma var algengt að leigja búnað „að sunnan“ fyrir viðburði fyrir norðan, meðal annars í tengslum við böll í Sjallanum þar sem Páll Óskar kom reglulega fram,“ segir Hinrik og lýsir því hvernig þeir Stefán Trausti fengu þá hugmynd að sniðugt væri að smíða DJ-búr sem staðsett væri á Akureyri svo ekki þyrfti ítrekað að flytja slíkan búnað norður. Búrið fyrir plötusnúðinn var upphaflega hugsað fyrir eina verslunarmannahelgi en sló heldur betur í gegn og varð í raun upphafið að Neopixel, fyrirrennara HS kerfa. „Markmið Neopixel var að eiga búnaðinn hér fyrir norðan til að sleppa við flutningskostnaðinn að sunnan því stærsta vandamálið við stærri viðburði á þessum tíma var að allt svona stærra dót þurfti alltaf að koma að sunnan. Flutningskostnaðurinn réð því úrslitum hversu veglegir viðburðir voru,“ segir Hinrik.

Það er að ýmsu að huga þegar kemur að því að skipuleggja viðburð. Rétt lýsing getur t.d. gjörbreytt stemmingunni í  hvaða íþróttahúsi sem er og fært rýmið í sparibúning. Þessi mynd er frá árshátíð Mosfellsbæjar. 

Grunnskólaböll yfir í fulla vinnu í viðburðarhaldi

Verkefni Neopixel uxu hratt og þeir félagarnir fóru að sanka að sér búnaði sem geymdur var í bílskúrnum á æskuheimili Hinriks í Lerkilundinum. Neopixel sá um grunnskólaböllin á Akureyri, þjónustaði Sjallann í kringum viðburði og tók að sér sífellt fleiri viðburði víðs vegar um landið. Árið 2016 dró hins vegar Stefán Trausti sig úr viðburðarhaldinu í kjölfar þess að hann eignaðist sitt fyrsta barn. Þá stóð Hinrik frammi fyrir þeirri ákvörðun að hætta þessu alveg eða fara inn í viðburðarbransann „af fullum krafti“ en fram til þess hafði hann starfað sem rafvirki á virkum dögum en sinnt viðburðahaldinu um helgar. Hann valdi seinni kostinn og fyrirtækið HS kerfi var formlega stofnað í janúar 2017.

  • Hinrik segir nánar frá þessari stærstu tækjaleigu landsbyggðarinnar á akureyri.net á morgun og áskorunum sem komið hafa upp í bransanum.