Fara í efni
Mannlíf

Viðburðarík íþróttavika – stórleikir á dagskrá

Viðburðarík íþróttavika er hafin. Bikarúrslitavika í blaki, úrslitakeppni í íshokkí karla, innanbæjarslagur í handbolta og úrslit ráðast í riðlakeppni Lengjubikars í fótbolta. Körfuboltaliðin loka svo vikunni á sunnudag.

MÁNUDAGUR 9. MARS - handbolti

Næstsíðasta umferð Olísdeildar karla í handknattleik er á dagskrá kvölsins og bæði Akureyrarliðin að spila kl. 19.30. KA á heimaleik gegn FH. 

  • Olísdeild karla í handknattleik, 21. umferð
    KA-heimilið kl. 19:30
    KA - FH
  • Útsending: Handboltapassinn í Sjónvarpi Símans
    Áskriftarsjónvarp

Fyrri leikur þessara liða í vetur fór ekki vel fyrir KA, 13 marka sigur FH í Kaplakrika, 45-32. Nánar er fjallað um leiki kvöldsins í sér frétt - sjá hér.

- - -

Þórsarar eiga hins vegar útileik í kvöld, sækja lið Aftureldingar heim í Mosfellsbæinn.

  • Olísdeild karla í handknattleik, 21. umferð
    Íþróttamiðstöðin að Varmá kl. 19:30
    Afturelding - Þór
  • Útsending: Handboltapassinn í Sjónvarpi Símans
    Áskriftarsjónvarp

Fyrri leik liðanna sem fram fór á Akureyri í nóvember lauk með jafntefli, 23-23.

ÞRIÐJUDAGUR 10. MARS - fótbolti, blak, íshokkí

Úrslitin í riðli Þórs í A-deild Lengjubikars karla í knattspyrnu ráðast á þriðjudag. Fyrir lokaleikinn er Þór í efsta sætinu með sjö stig, jafn mörg stig og ÍA, en Valur er í 3. sætinu með sex stig. Þór og Valur mætast í Boganum á þriðjudag.

  • Lengjubikar karla, A-deild
    Boginn kl. 17:00
    Þór - Valur
  • Útsending: Livey.events
    Áskrift að stökum leikjum eða rás

Valur þarf að vinna til að ná efsta sæti riðilsins og fara í undanúrslit, en Þór fer áfram með sigri eða jafntefli. Efsta lið í hverjum riðlanna fjögurra fer í undanúrslitin, sem eru á dagskrá laugardaginn 14. mars. Úrslitaleikur mótsins er á dagskrá laugardaginn 21. mars.

- - -

Þór/KA leikur lokaleik sinn í riðli 1 í A-deild Lengjubikars kvenna í knattspyrnu á þriðjudag þegar FH-ingar mæta í Bogann. Þór/KA getur komið sér upp í 2. sæti riðilsins með sigri, en þó er ólíklegt að það dugi til að liðið fari áfram í undanúrslitin. Stjarnan er í efsta sæti riðilsins með tíu stig, Þróttur er með níu stig og Þór/KA getur náð níu stigum með sigri. Þróttur á hins vegar eftir að sækja FHL heim í lokaleik riðilsins á laugardag og nægir jafntefli þar til að fara áfram.

  • Lengjubikar kvenna, A-deild
    Boginn kl. 19:30
    Þór/KA - FH
  • Útsending: Livey.events
    Áskrift að stökum leikjum eða rás

Tvö lið úr hvorum riðli fara áfram í undanúrslitin.

- - -

Upp er runnin bikarvika í blakinu, undanúrslitaleikir kvenna á dagskrá á þriðjudag og þar eru bikarmeistarar KA í eldlínunni. KA vann Þrótt Fjarðabyggð 3-1 á útivelli í átta liða úrslitunum, en mótherjarnir á þriðjudag, sameiginlegt lið Þróttar í Reykjavík og Blakfélags Hafnarfjarðar, vann Völsung 3-1 á heimavelli.

KA er ríkjandi bikarmeistari, liðið vann HK 3-2 í úrslitaleiknum í fyrra.

  • Kjörísbikar kvenna í blaki, undanúrslit
    Digranes í Kópavogi kl. 19:30
    Þróttur Reykjavík/Blakfélag Hafnarfjarðar - KA

Þessi lið mættust fjórum sinnum í Unbroken-deildinni í vetur og vann KA allar viðureignirnar. KA vann tvær viðureignir 3-0 á Akureyri í september, 3-2 á útivelli í nóvember og 3-1 á útivelli í febrúar. 

Hin viðureignin í undanúrslitum er á milli HK og Aftureldingar. Sigurliðin mætast í úrslitaleik í Digranesi laugardaginn 14. mars kl. 13.

- - -

Úrslitaeinvígið um Íslandsmeistaratitil karla í íshokkí hefst í kvöld þegar SA Víkingar sækja lið Skautafélags Reykjavíkur heim í Laugardalinn.

  • Toppdeild karla í íshokkí
    úrslitakeppni, leikur 1
    Skautahöllin í Laugardal kl. 19:45
    SR - SA
  • Útsending: icehockeyiceland.tv
    Áskrift að rás eða stökum leikjum

Fjallað er um einvígi SA og SR í sér fréttum.

FIMMTUDAGUR 12. MARS - handbolti, íshokkí

Lokaumferð Olísdeildar karla í handknattleik verður spiluð á fimmtudagskvöld og byrja allir leikirnir á sama tíma, kl. 19:30. Handboltaáhugafólk á Akureyri fær veislu í Höllinni þegar Þór og KA mætast. 

  • Olísdeild karla í handknattleik, lokaumferð
    Íþróttahöllin á Akureyri kl. 19:30
    Þór - KA
  • Útsending: Handboltapassinn í Sjónvarpi Símans
    Áskriftarsjónvarp

Fyrri leik liðanna, sem fram fór í KA-heimilinu í nóvember, lauk með fjögurra marka sigri KA, 32-28.

Nánar verður fjallað um viðureign liðanna í sér umfjöllun á leikdegi.

- - -

SA Víkingar, karlalið Skautafélags Akureyrar, tekur á móti SR í öðrum leik liðanna í úrslitaeinvígi Toppdeildar karla. 

  • Toppdeild karla í íshokkí
    úrslitakeppni, leikur 2
    Skautahöllin á Akureyri kl. 19:30
    SA - SR
  • Útsending: icehockeyiceland.tv
    Áskrift að rás eða stökum leikjum

Nánar er fjallað um úrslitaeinvígið í sér umfjöllun á leikdögum einvígisins.

LAUGARDAGUR 14. MARS - blak, handbolti, íshokkí

Fari svo að KA vinni Þrótt R./Blakfélag Hafnarfjarðar í undanúrslitum Kjörísbikars kvenna í blaki mætir liðið annaðhvort HK eða Aftureldingu í úrslitaleik í Digranesi á laugardag kl. 13.

  • Kjörísbikar kvenna í blaki
    Digranes í Kópavogi kl. 13

    KA eða Þróttur R/Blakf. Hafnarfjarðar gegn HK eða Aftureldingu

- - -

Enn er þremur umferðum ólokið í Olísdeild kvenna í handknattleik. KA/Þór hefur þegar tryggt sér sæti í fyrstu umferð úrslitakeppninnar. Næsti leikur er útileikur gegn ÍR, sem situr í 4. sætinu með 20 stig, en KA/Þór er í 6. sætinu með 15 stig. 

Fram hefur komið í fréttum að Unnur Ómarsdóttir leikur ekki meira með liðinu þar sem hún er barnshafandi. Þá hefur hin ungverska Anna Petrovic snúið aftur til síns gamla félags í Austurríki, en hún kom til KA/Þórs fyrir tímabilið.

  • Olísdeild kvenna í handknattleik, 19. umferð
    Skógarsel í Breiðholti kl. 15:15
    ÍR - KA/Þór 
  • Útsending: Handboltapassinn í Sjónvarpi Símans
    Áskriftarsjónvarp

Spiluð er þreföld umferð í Olísdeild kvenna og hafa liðin því mæst tvisvar nú þegar í deildinni í vetur, í hnífjöfnum leikjum. ÍR vann með einu marki í Breiðholtinu í október, 30-29, en KA/Þór vann með tveggja marka mun á Akureyri í janúar, 23-21.

- - -

Þriðji leikur í úrslitaeinvíginu í Toppdeild karla í íshokkí fer fram í Skautahöllinni á Akureyri á fimmtudagskvöld. Hafi annað liðið náð að vinna tvo fyrstu leikina er mögulegt að einvíginu ljúki á laugardag. 

  • Toppdeild karla í íshokkí
    úrslitakeppni, leikur 3
    Skautahöllin í Laugardal kl. 17:45
    SR - SA
  • Útsending: icehockeyiceland.tv
    Áskrift að rás eða stökum leikjum

Nánar er fjallað um úrslitaeinvígi SA og SR í sér umfjöllun.

SUNNUDAGUR 15. MARS - körfubolti

Kvennalið Þórs í körfuknattleik tekur á móti Ísfirðingum í Vestra á sunnudag. Þór er í 2. sæti deildarinnar, hefur unnið 13 leiki og tapað tveimur. Aþena er í toppsætinu með 15 sigra og eitt tap, en Fjölnir í 3. sætinu með 13 sigra og þrjú töp. Vestri er í botnsætinu án sigurs í fyrstu 15 leikjum sínum.

  • 1. deild kvenna í körfuknattleik
    Íþróttahöllin á Akureyri kl. 13
    Þór - Vestri
  • Útsending: KKÍ TV á Sýn
    Áskriftarsjónvarp

Þór vann stórsigur í fyrri leik liðanna sem fram fór á Ísafirði í lok nóvember, 132-50.

- - -

Karlalið Þórs í körfuknattleik leikur næstsíðasta leik sinn á leiktíðinni á sunnudag þegar liðið sækir Fylki heim í Árbæinn. Þór er í þriðja neðsta sæti deildarinnar, hefur unnið fjóra leiki, Hamar er með þrjá sigra og Fylkir á botninum með tvo sigra.

  • 1. deild karla í körfuknattleik
    Fylkishöllin í Árbæ kl. 19:15
    Fylkir - Þór
  • Útsending: KKÍ TV á Sýn
    Áskriftarsjónvarp

Þór vann fyrri leik liðanna sem fram fór á Akureyri í desember með tíu stiga mun, 96-86.