Var velgengni Liverpool „mottunni“ að þakka?
„Mér varð á að byrja að tala um ensku knattspyrnuna í síðasta blóti og þegar ég geri það lendi ég oft í basli með að hætta.“
Þannig hefst Orrablót dagsins; pistill Orra Páls Ormarssonar, blaðamanns á Morgunblaðinu. Orri Páll skrifar pistil – Orrablót – annan hvern föstudag fyrir akureyri.net.
Orri Páll er mikill áhugamaður um ensku knattspyrnuna, eins og lesendum ætti að vera vel kunnugt. Í dag beinir hann sjónum sínum einkum að Liverpool, ekki á hefðbundinn hátt þó; hann segir liðið vissulega hafa borið af öðrum liðum á Englandi þegar hann var sjálfur að vaxa úr grasi. Rauði herinn var yfirleitt með bestu leikmennina, segir Orri Páll, en ... „galdurinn lá samt í öðru – mottum. Erfitt var að fá samning hjá Liverpool nema að menn væru með frambærilega mottu yfir efri vörinni. Kíkið bara á liðsmyndir frá því í kringum 1980.“
Orrablót dagsins: Steinhættu að halda með Liverpool