Fara í efni
Mannlíf

Uppbyggingin mikla í Norðurgötunni 1926

Arnór Bliki Hallmundsson heldur áfram að fræða lesendur um hundrað ára gömul hús í pistlaröðinni Hús dagsins. Hann er áfram í Norðurgötunni eins og í síðasta pistli, nú við hús númer 26. Mikil uppbygging átti sér stað í Norðurgötunni árið 1926.

Í pistli dagsins fjallar Arnór Bliki um uppbygginguna á Oddeyrinni og segir meðal annars:

„Árið 1926 var mikið uppbyggingatímabil við Norðurgötu á Oddeyri. Ekki færri en sex steinhús risu það ár við götuna og hóf gatan að teygja sig lengra út á eyrina. Á meðal þeirra sem tóku þátt í þessari uppbyggingu voru þeir Magnús Halldórsson og Jón Sigurðsson. Þá er að finna a.m.k. tvisvar í bókunum bygginganefndar það ár, í bæði skiptin skráðir fyrir húsum við Norðurgötu.

Í mars 1926 sækja þeir Magnús og Jón, ásamt Friðþóri Jakobssyni um leyfi til að reisa hús við Gránufélagsgötu, andspænis Grundargötu en bygginganefndin og skipulagsnefnd hafa þar aðrar hugmyndir. Niðurstaðan varð síðar sú, að þeir reistu hús spölkorn vestar, sem varð Norðurgata 10. Þann 5. júlí 1926 er þeim Magnúsi og Jóni veitt leyfi til byggingar húss ofar við Norðurgötu, nánar tiltekið á [...]lóð austanvert við Norðurgötu norðaustur af húsi Aðalsteins Sigurðsson og Jóns Þórðarsonar (Bygg.nefnd Ak. 1926: nr. 586). Fram kemur að húsið eigi að vera hornhús við fyrirhugaða götu þar (Eiðsvallagötu). En byggingaleyfið fá þeir Magnús og Jón og í manntali 1926, er einmitt að finna umrætt hús, Norðurgötu 26.“