Fara í efni
Mannlíf

Toppsætið fór frá Þór í síðasta fjórðungi

Emma Karólína Snæbjarnardóttir búin að snúa af sér varnarmenn Aþenu og sækir að körfunni. Mynd: Helgi Heiðar Jóhannesson.

Kvennalið Þórs í körfuknattleik missti toppsæti 1. deildarinnar eftir 15 stiga tap fyrir Aþenu á heimavelli í gærkvöld, 71-86. Þetta var fyrsti tapleikur liðsins í deildinni í vetur og stendur Aþena nú með pálmann í höndunum vegna betra stigaskors í innbyrðis viðureignum liðanna, sem bæði hafa unnið alla aðra leiki. Þór vann útileikinn með 12 stiga mun, en 15 stiga tapið í gær hleypti Aþenu upp í efsta sætið.

Byrjunnin var brösótt hjá Þórsliðinu, fimm tapaðir boltar strax í fyrsta leikhluta og þriggja stiga skotin skiluðu engu fyrr en í síðustu sókn liðsins í leikhlutanum þegar Yvette Adriaans setti niður mikilvægan þrist og breytti stöðunni í 16-20. Aþena hélt forystunni áfram út fyrri hálfleikinn, munurinn varð mestur níu stig, en Þórsstelpurnar náðu góðu áhlaupi og breyttu stöðunni úr 25-34 í 32-34, fengu svo nokkur tækifæri til að komast yfir, en misstu taktinn á lokamínútu fyrri hálfleiksins. Gestirnir með fimm stiga forystu í leikhléi, 32-37.

Þórsstelpurnar komu mun ákveðnari inn í seinni hálfleikinn, skoruðu fyrstu sjö stigin og komust yfir í fyrsta skipti frá því á upphafsmínútunni. Nokkrir þristar skiluðu liðinu áfram, leikurinn hnífjafn en Þór með tveggja stiga forystu fyrir lokafjórðunginn, 59-57. Þórsliðið hélt forystunni að mestu í þriðja leikhlutanum og fram í þann fjórða, en munurinn þó aðeins tvö til fimm stig. 

Emilie Ravn til vinstri, var með flesta framlagspunkta í Þórsliðinu, 21. Yvette Adriaans var næststigahæst með 18 stig og skoraði fjóra þrista. Myndir: Helgi Heiðar Jóhannesson.

Fyrir leikinn vissu Þórsarar að liðið þyrfti ekki einu sinni að vinna leikinn til að halda toppsætinu því tap með minna en 12 stigum hefði tryggt þeim betri árangur í innbyrðis viðureignum við Aþenu og liðið þar með haldið toppsætinu áfram. Þegar um sjö mínútur voru eftir af leiknum var jafnt, 65-65. Eftir það fór flest úrskeiðis og gestirnir juku forskotið smátt og smátt út leikinn. Það sem eftir var skoraði Þór sex stig gegn 19 stigum gestanna. Fjórði leikhlutinn tapaðist með 17 stiga mun, 12-29.

Á ögurstundu, þegar rúm mínúta var eftir, var dæmd óíþróttamannsleg villa á Chloe Wilson þegar hún sótti að körfunni með boltann og rakst í andlitið á leikmanni Aþenu. Körfuboltaáhugamenn hafa tjáð sig um atvikið og sagst aldrei hafa séð það áður að leikmaður með boltann sem sæki að körfu andstæðinganna fái dæmda á sig slíka villu, þ.e. að ruðningur sé dæmtur sem óíþróttamannsleg villa. Dómarar leiksins skoðuðu upptöku af atvikinu, en breyttu ekki ákvörðun sinni. Þarna var staðan 69-81, eða 12 stiga munur. Bæði vítaskot Aþenu nýttust auk þess sem þær fengu boltann. Tilraunir til að koma muninum niður fyrir 12 stigin tókust ekki og því fór sem fór.

Þór - Aþena (16-20) (16-17) 32-37 (27-20) (12-29) 71-86

Emma Karólína Snæbjarnardóttir var stigahæst Þórsara með 19 stig og Yvette Adriaans næst með 18. Hjá Aþenu var það Katarzyna Trzeciak sem skoraði mest, 27 stig. 

Leikirnir gegn Aþenu eru ávallt kröftugir og mikil átök, lið Aþenu spilar af hörku og fær að gera það. Villur liðanna engu að síður álíka margar, Þór með 18 og Aþena 19.  Aþena keyrði á fleiri leikmönnum en Þórsliðið og ef til vill skipti það sköpum þegar á reyndi í lokin. Fjórar úr byrjunarliði Þórs spiluðu 37 mínútur eða meira, varamenn samtals með rúmar 17 mínútur, á meðan varamenn Aþenu spiluðu samtals tæpar 50 mínútur. Þegar kemur að jöfnum og erfiðum leikjum eins og gegn Aþenu getur það haft afgerandi áhrif, en flestir leikir liðsins í vetur hafa verið mun auðveldari eins og sést á því að Þórsliðið er með 503 stig í plús í 12 leikjum, eða að meðaltali tæplega 42 stiga mun í leik.

Helstu tölur hjá leikmönnum Þórs, stig/fráköst/stoðsendingar:

  • Emma Karólína Snæbjarnardóttir 19/3/6
  • Yvette Adrians 18/7/2
  • Emilie Ravn 15/7/5 - 21 framlagspunktur
  • Iho Lopez 9/9/1
  • Chloe Wilson 7/7/2
  • Hjörtfríður Óðinsdóttir 3/0/0
  • Karen Lind Helgadóttir 0/1/1

Aþena tók toppsætið af Þór eins og áður sagði, en bæði lið hafa nú unnið 11 leiki og tapað einum þegar sex umferðir eru eftir. 

Tölfræði leiksins.

Staðan í deildinni.