Fara í efni
Mannlíf

Svekkjandi tap hjá KA/Þór gegn Val

Bergrós Ásta Guðmundsdóttir, á myndinni til vinstri, gerði 6 mörk úr 7 skotum í kvöld, og Susanne Denise Pettersen gerði 7 mörk úr 11 skotum. Myndir J.L.Long

Valskonur voru stálheppnar að fara suður yfir heiðar með bæði stigin í pokanum þegar þær unnu afar nauman sigur á KA/Þór í efstu deild kvenna í handknattleik í kvöld. Lokatölur urðu 31:30 Valskonum í vil og eftir tapið er ljóst að KA/Þór hafnar í 6. sæti deildarinnar.

Líklega bjuggust flestir við öruggum Valssigri í kvöld en KA/Þór hefur svo sannarlega sýnt það í vetur að liðið getur velgt hvaða liði sem er í deildinni undir uggum. Norðanstúlkur skoruðu fyrstu tvö mörk leiksins og leiddu allan fyrri hálfleikinn. Staðan var 14:13 KA/Þór í vil í leikhléi.

Æsispennandi lokakafli

Fljótlega í seinni hálfleik náðu gestirnir að jafna leikinn og eftir um það bil fimm mínútur voru þeir komnir yfir. Hafi einhverjir þá búist við að Valur léti kné fylgja kviði og valta yfir KA/Þór þá varð raunin önnur. Það tók KA/Þór ekki nema fimm mínútur að komast aftur yfir og lengst af seinni hálfleiks voru þær hálfu skrefi á undan Val. Lokamínúturnar voru æsispennandi, Susanne Denise Pettersen kom KA/Þór yfir í 29:28 þegar fimm mínútur voru eftir af leiknum en Valur jafnaði strax og komst yfir þegar þrjár mínútur voru eftir. Lydía Gunnþórsdóttir jafnaði þegar tvær mínútur eftir og þegar ein mínúta var til leiksloka komst Valur aftur yfir. Þrátt fyrir að hafa fengið færi á þessari lokamínútu til að jafna metin þá tókst það ekki hjá KA/Þór og Valsarar hrósuðu heldur betur happi yfir að hafa náð að kreista sigur út úr þessari viðureign.

KA/Þór leikur gegn Haukum eða ÍR í úrslitakeppninni

Ljóst er að KA/Þór endar í 6. sæti deildarinnar og Valsarar í því efsta, sama hvernig úrslit leikja verða í lokaumferð deildarinnar um helgina. ÍBV er búið að tryggja sér 2. sætið og Valur og ÍBV fara því beint í undanúrslit deildarinnar. Næstu 4 lið leika um hin tvö sætin í undanúrslitunum og það veltur á úrslitunum í lokaumferðinni hvort andstæðingar KA/Þórs verða Haukar eða ÍR.

Mörk KA/Þórs: Susanne Denise Pettersen 7, Bergrós Ásta Guðmundsdóttir 6, Lydía Gunnþórsdóttir 4 (2 víti), Trude Blestrud Hakonsen 4, Tinna Valgerður Gísladóttir 3, Elsa Björg Guðmundsdóttir 2, Hafrún Linda Guðmundsdóttir 2, Sólveig Lára Kristjánsdóttir 1, Herdís Eiríksdóttir 1.

Varin skot: Bernadett Leiner 7 (1 víti), Ástrós Anna Bender 3.

Mörk Vals: Auður Ester Gestsdóttir 8, Lovísa Thompson 6, Arna Karitas Eiríksdóttir 5, Elísa Elíasdóttir 5, Guðrún Hekla Traustadóttir 3, Lilja Ágústsdóttir 3 (1 víti), Ásthildur Jóna Þórhallsdóttir 1.

Varin skot: Elísabet Millý Elíasardóttir 10 (1 víti).

Öll tölfræði leiksins hjá HBStatz

Staðan í Olísdeild kvenna