Fara í efni
Mannlíf

Tónlistin skapar tengsl frá fyrstu tíð

Mynd: Skapti Hallgrímsson

Ekki allir nemendur Tónlistarskólans á Akureyri eru komnir á þann aldur að geta gengið, hvað þá sungið eða leikið á hljóðfæri. Í tónlistartímunum Krútttónó og Smátónó eru nemendurnir á aldrinum fjögurra mánaða og upp í þriggja ára gamlir, en um er að ræða tónlistarstundir þar sem foreldrar og börn syngja, leika og njóta tónlistar saman.

Sumum kann að þykja fullsnemmt að bjóða nokkurra mánaða gömlum börnum í tónlistarskóla en Sigrún Magna Þórsteinsdóttir, sem sér um þessa tónlistartíma ásamt Sophia Fedorovych, segir að það sé aldrei of snemmt að byrja að njóta tónlistar. Tímarnir snúast þó ekki síður um tengslin á milli foreldra og barna en tónlistina sjálfa. „Foreldrið er í augnsambandi við barnið sitt og er að syngja fyrir það, strjúka því og saman eiga þau þessa tengslastund,“ segir Sigrún og bætir við að fyrst og fremst sé verið að nýta tónlistina til að skapa nánd og samskipti milli foreldris og barns.

Mynd: Skapti Hallgrímsson

Tónlistarrútína sem róar barnið

Í tónlistarstundunum kynnast börnin tónlistinni í gegnum leik og samskipti við foreldra sína en þar er sungið, farið með þulur og unnið með hreyfingu, snertingu og endurtekningar. Sigrún segir slíkar stundir örvandi fyrir þroska barnanna og að auðvelt sé að sjá hvernig þau njóta þeirra. Hún segir tónlistina jafnframt geta orðið hluta af daglegu lífi fjölskyldunnar. Foreldrar læri lög og þulur sem þeir geti síðan notað heima, til dæmis við leik, bleyjuskipti eða þegar þarf að róa barnið. Sigrún þekkir þetta sjálf af eigin reynslu. Þegar sonur hennar var lítill notaði hún sambærilega tónlistarrútínu með honum heima og segir muninn hafa verið greinilegan.

Sophia og Sigrún Magna sjá um tónlistartíma fyrir yngstu kynslóðina í Tónak. 

Fleiri feður farnir að mæta

Sigrún hefur langa reynslu af tónlistarstarfi með börnum og þekkir því vel hversu mikil áhrif tónlist getur haft á þau allra yngstu, en um árabil hefur hún staðið fyrir sambærilegu starfi innan kirkjunnar, meðal annars undir heitinu Krílasálmar. Hún segir að þegar hún fór fyrst af stað með þetta starf hafi nær eingöngu mæður komið á slík námskeið með ungabörn sín og einstaka pabbi komið og horfði á. Á síðustu árum hefur orðið mikil breyting á þessu og feður og mæður sækja svo gott sem námskeiðin til jafns. Sigrún segir ánægjulegt að sjá feðurna taka sífellt meiri þátt enda sé tónlistin ekki síður mikilvæg leið fyrir þá til að mynda tengsl við börnin sín. Breytt fyrirkomulag fæðingarorlofs hafi þar án efa sitt að segja, enda séu feður nú mun meira með börnum sínum frá fyrstu mánuðunum. Þá segir hún tónlistarstundirnar líka vera góða leið fyrir foreldra til að hitta aðra foreldra í sömu sporum og eiga saman notalega stund.

Mynd: Skapti Hallgrímsson

Nándin skiptir máli

Aðspurð hvort foreldrarnir á námskeiðunum séu ekkert feimnir við það að mæta og syngja með öðrum foreldrum segir hún að það sé algjör óþarfi. Hún hefur í gegnum tíðina heyrt fjölmarga fullorðna segja að þeir séu laglausir og geti því ekki sungið. Oft megi rekja slíka sannfæringu til reynslu úr æsku þegar viðkomandi var sagt að hann syngi ekki nógu vel. Sigrún segir það sorglegt, því flestir geti sungið þótt sumir þurfi meiri þjálfun en aðrir. Hún telur mikilvægt að fólk fái að njóta þess að syngja án þess að hafa áhyggjur af því hvort allir tónarnir séu réttir. Það eigi ekki síst við þegar foreldrar syngja fyrir börnin sín. Þar skipti mestu máli að barnið heyri kunnuglega rödd og finni nándina.

Mynd: Skapti Hallgrímsson

Úr kirkjunni í Tónó

Sigrún hefur nýverið tekið við auknu starfi í Tónlistarskólanum á Akureyri eftir að hafa lokið löngum starfsferli sem organisti í Akureyrarkirkju. Hún hefur kennt við skólann í hlutastarfi um árabil og er því ekki að koma þar inn sem ókunnugur starfsmaður en auk Krútttónó og Smátónó kennir hún á orgel, er meðleikari í söngdeild og kemur að starfi barna- og unglingasöngdeildar skólans. Hún segir nýja starfið leggjast afar vel í sig. „Ég er bara rosa glöð í nýju vinnunni,“ segir Sigrún.

Myndir: Skapti Hallgrímsson


  • Viðtal akureyri.net við Sigrúnu Mögnu á mánudaginn um árin í Akureyrarkirkju, ferilinn og fleira:

„Það var bara kominn tími á breytingar“