Fara í efni
Mannlíf

Toni, Jóndi, lýsið og handlangarinn ungi

Fyrsta hræran var klár. Ég hellti henni í hjólbörurnar og lagði af stað sem leið lá frá bílaplaninu og inn í húsið, sem var huggulegt einbýlishús á Brekkunni. Búið var að koma fyrir planka til að auðvelda mér að koma hlassinu á sinn áfangastað, þar sem múrararnir biðu átekta með skeiðar sínar. Klárir í slaginn.

Þannig hefst Orrablót dagsins, pistill Orra Páls Ormarssonar, Moggamannsins magnaða. Pistlar hans fyrir Akureyri.net birtast annan hvern föstudag.

Orri heldur áfram:

Nema hvað, mér hlekktist eitthvað á og hitti illa á helvítis plankann með þeim afleiðingum að ég missti allt vald á börunum sem ultu á hliðina og hræran vall meira og minna öll upp úr. Og út á gólf.

Múrararnir, Toni og Jóndi, störðu á mig eins og naut á nývirki. Þeir sögðu það ekki upphátt en ég heyrði þá hugsa: „Hvaða sendingu höfum við eiginlega fengið núna?"

Orrablót dagsins: Lýsið frá Tona og Jónda