Þorskpylsan mjög vinsæl í Grímsey
Fiskipylsan í Grímsey virðist vinsælli en nokkru sinni fyrr. Sala á henni hefur aukist í sumar og ferðamenn flykkjast að nyrsta pylsuvagni Íslands til að smakka það sem margir telja vera einstaka upplifun. Reyndar er ekki um eiginlega pylsu að ræða heldur steikta þorskbita sem framreiddir eru í pylsubrauði.
Pylsuvagninn Arctic Hot Dogs stendur við höfnina í Grímsey og er oft fyrsti viðkomustaður þeirra sem stíga í land. Þar er boðið upp á fiskipylsur, hefðbundnar pylsur og ýmsar óvenjulegar útgáfur sem hafa bæst við matseðilinn undanfarin tvö sumur. „Ég sel klárlega fleiri fiskipylsur í sumar en í fyrra,“ segir Leonardo Piccione, ítalskur rithöfundur sem hefur séð um rekstur vagnsins tvö sumur í röð. Hann segir að nýtt og áberandi skilti með mynd af fiskipylsunni hafi vakið athygli ferðamanna og orðið til þess að fleiri ákveði að smakka hana.
Leonardo leggur áherslu á að hugmyndin að fiskipylsunni sé ekki hans heldur eigenda vagnsins, Sigurðar Henningssonar og eiginkonu hans Hörpu Þóreyjar Sigurðardóttur, sem opnuðu vagninn árið 2018 og þróuðu þessa sérstöku afurð, þorskbita í pylsubrauði.

Nyrsti pylsuvagn landsins er í Grímsey. Hann er opin á sumrin þá daga sem ferjan kemur í eyjuna. Mynd: Vistit Grímsey
Íspylsa með ítölsku ívafi
Leonardo hefur hins vegar bætt við eigin hugmyndum á matseðilinn, meðal annars íspylsu sem vakið hefur mikla athygli. Þar er pylsubrauð fyllt með ís og súkkulaði- og jarðarberjasósu, innblásið af sikileyskri hefð þar sem ís er borinn fram í sætu brauði (brioche). „Pylsubrauðið á Íslandi er svolítið sætt og hentar því ótrúlega vel með ís,“ segir Leonardo. Hann segir börnin í Grímsey sérstaklega hrifin af þessari óvenjulegu samsetningu. Í sumar bættist einnig við svokölluð Mexíkópylsa með jalapeño, osti og Doritos-flögum, en að sögn Piccione hafa eyjarskeggjar tekið henni fagnandi.

Má bjóða þér ís í pylsubrauði? Íspylsa er í boði í pylsuvagninum í Grímsey.
Ferskur fiskur og sérstök sósa
Að sögn Leonardo eru viðbrögð ferðamanna við fiskipylsunni nánast undantekningarlaust jákvæð. „Fólk segir að fiskurinn sé einstaklega ferskur. Hann fer nánast beint úr höfninni í pylsuvagninn,“ segir hann og bætir við að margir eigi erfitt með að trúa því hversu bragðgóður réttur þetta sé. Og þótt fiskipylsan sé vinsæl meðal ferðamanna segir hann að heimamenn kaupi hana líka, enda sé hún borin fram með sérstakri sósu úr majónesi, jalapeño, hvítlauk og sýrðum rjóma sem gefi henni allt annað yfirbragð en fólk á að venjast.

Leonardo hefur verið á Íslandi í áratug og skrifað fjórar bækur sem allar tengjast Íslandi. Mynd: María Tryggvadóttir
Selur pylsur á sumrin, skrifar bækur á veturna
Leonardo hefur verið tíður gestur á Íslandi í tæpan áratug og dvalið í Grímsey nokkrum sinnum á síðustu árum. Hann kom upphaflega til eyjarinnar til að safna efni í bók sem kom út á Ítalíu í vor og ber heitið Cose da fare di notte al Circolo Polare Artico (Hvað er hægt að gera á nóttunni við heimskautsbaug). Í bókinni segir hann frá eigin upplifun af Grímsey, sögu eyjarinnar, náttúru og fólkinu sem þar býr.
Hann tók að sér rekstur pylsuvagnsins í fyrrasumar en þá hafði reksturinn legið í dvala í ár. Eftir það sumar hafi hann einfaldlega orðið ástfanginn af lífinu í Grímsey og ákveðið að standa vaktina í pylsuvagninum annað sumar. Hvort hann verði þar aftur næsta sumar er óvíst en Leonardo er með fleiri bókahugmyndir í pokahorninu.
„Þetta er ekki bara þjónusta við ferðamenn. Vagninn skiptir líka miklu máli fyrir samfélagið. Börnin, sjómennirnir og íbúarnir koma hingað reglulega og fá sér ís eða pylsu. Það eru einfaldlega ekki margir staðir í Grímsey þar sem hægt er að grípa sér eitthvað að borða,“ segir hann. Þótt fáir Ítalir hafi komið til Grímseyjar það sem af er sumri vonast hann til að sjá fleiri landa sína í ágúst. Flestir Ítalir taki sumarfrí í þeim mánuði og hann segist vona að einhverjir þeirra hafi lesið bókina og ákveði að heimsækja eyjuna til að kynnast sögunum á eigin skinni.

Nýjasta bók Leonardo fjallar um lífið í Grímsey en alls hefur hann skrifað fjórar bækur þar sem Ísland kemur við sögu. Mynd: Ivan Abbattista