Fara í efni
Mannlíf

Þórsarar hefja söfnun upp í sektina frá KKÍ

Úr leikjum Þórsliðana gegn Selfyssingum á Akureyri í desember. Myndir: Guðjón Andri Gylfason.

Körfuknattleiksdeild Þórs hefur hrundið af stað söfnun til að standa straum af væntanlegri sekt frá KKÍ vegna leiks sem ekki var spilaður.

Náttúruöflunum er yfirleitt sama um leikjadagskrár sérsambanda í íþróttum, eins og sannast hefur undanfarna daga þegar leikjum hefur verið frestað, eða ekki frestað, og deilt um túlkanir á reglugerðum og/eða hvort beita eigi skynsemi og sveigjanleika í stað þess að horfa eingöngu á orðalag reglugerðanna. Eða er ekki sama hvort það er Jón eða séra Jón sem óskar frestunar? Nokkur spjót hafa staðið á KKÍ í athugasemdum lesenda á samfélagsmiðlum í gær og fyrradag.

Körfuknattleiksdeild Þórs fékk sem kunnugt er neitun frá mótastjóra eða mótanefnd Körfuknattleikssambands Íslands þegar óskað var frestunar á leik Þórs og Selfoss í 1. deild kvenna sem átti að fara fram á Selfossi á fimmtudagskvöld. Þórsarar ákváðu að senda sitt lið ekki út í óvissuna og hættulegar aðstæður og hlutu að launum 20-0 ósigur, auk þess að eiga von á að lágmarki 300 þúsund króna sekt frá sambandinu sem skiptist jafnt á milli KKÍ og Selfyssinga. Sektin getur þó orðið umtalsvert hærri út frá túlkun reglugerðar um ferðakostnað.

Skjáskot úr útsendingu frá leiknum sem ekki var spilaður. Klukkan er 19:15 og dómarar ekki sjáanlegir á leikvellinum.

Körfuboltaleikir eru sendir út með sjálfvirkum vélum í gegnum KKÍ TV á Sýn. Það hefur vakið athygli meðal þeirra sem kíktu á útsendingu frá leiknum sem ekki var spilaður að þar virtist sem Selfossliðið væri á æfingu og engir dómarar sjáanlegir kl. 19:15 þegar að öllu eðlilegu hefði átt að flauta leikinn á samkvæmt leikjadagskrá deildarinnar. Samkvæmt reglugerð eiga dómarar að mæta á leikstað, flauta leikinn af og skila atvikaskýrslu til KKÍ. 

Þórsarar safna upp í sektina

Áhugasamur lesandi hafði samband við akureyri.net og stakk upp á að bæjarbúar myndu styðja körfuknattleiksdeild með söfnun upp í sektina, og helst gott betur. Hann var greinilega ekki sá eini sem fékk þá hugmynd því nú hefur körfuknattleiksdeild Þórs hrundið af stað söfnun.

Í auglýsingu deildarinnar segir meðal annars: „Við tókum erfiða en rétta ákvörðun að setja öryggi leikmanna okkar ofar öllu öðru og leggja ekki af stað í ferð við hættulegar aðstæður.“ Stjórn deildarinnar tók þá ákvörðun, eftir áskoranir, að hrinda söfnuninni af stað. „Stöndum saman. Verndum okkar fólk,“ eru lokaorð auglýsingarinnar.

Þremur leikjum frestað í gær

Veður voru áfram válynd á norðanverðu landinu í gær og varð niðurstaðan að þremur leikjum var frestað, leik Selfoss og Þórs í 1. deild karla, leik Vestra og KV í 1. deild kvenna og leik Tindastóls og Álftaness í Bónusdeild karla. Mögulega vigtaði úrvalsdeildarleikurinn meira en hinir í þessum ákvörðunum. Um það er erfitt að fullyrða.

Þegar á allt er litið, alla mögulega vegi, má segja að leiðir milli Álftaness og Sauðárkróks annars vegar og Akureyrar og Selfoss hins vegar hafi verið opnar. Akureyringar hefðu þá þurft að aka Siglufjarðarleiðina í stað Öxnadalsheiðar og síðan um Laxárdalsheiði, Skógarströnd og Heydal í stað þess að fara Holtavörðuheiðina. Að sama skapi hefðu Álftnesingar þurft að aka um Heydal, Skógarströnd og Laxárdalsheiði á leið sinni í Skagafjörðinn. Á óraunhæfum nótum má svo einnig segja að Þórsliðið hefði getað ekið austur fyrir og þaðan á Selfoss, samtals um 900 kílómetra.

Ekki er víst að hér eigi við að ekki sé sama Jón og séra Jón, en frestun leikja gærdagsins varð þó ekki að veruleika fyrr en eftir að Álftnesingar stigu niður fæti, í samvinnu og samtali við Þórsara, eftir því sem næst verður komist.

Aftur frestað á Selfossi

Nú er staðfest að leik Selfoss og Þórs í 1. deild karla hefur aftur verið frestað þar sem Öxnadalsheiðin verður væntanlega lokuð fram yfir hádegið og verður hann ekki leikinn í dag. Reikna má með að reynt verði að koma honum á dagskrá aftur á morgun. Þess má geta að umspil liðanna í 2.-9. sæti í 1. deild karla á að hefjast föstudaginn 27. mars og þar verða Selfyssingar í eldlínunni.