Þór heima gegn ÍA – KA úti gegn FH
Sjöunda umferð Bestu deildar karla í knattspyrnu hefst í dag. Bæði Akureyrarliðin verða í eldlínunni, Þór á heimavelli, en KA á útivelli.
Þór á heimaleik gegn Skagamönnum, með fyrrum leikmann og þjálfara Þórs, Lárus Orra Sigurðsson, við stjórnvölinn. Þór er í 9. sæti deildarinnar að loknum sex umferðum, hefur unnið tvo leiki, en ÍA er sætinu neðar með fimm stig, hefur unnið einn leik og gert tvö jafntefli. Eftir óvænt þrjú stig í fyrsta útileik hefur Þór tapað fjórum af síðustu fimm leikjum, en unnið einn.
- Besta deild karla í knattspyrnu, 7. umferð
Þórsvöllur (VÍS-völlurinn - gervigras á Ásnum) kl. 16
Þór - ÍA
Þór og ÍA mættust síðast í efstu deild karla í knattspyrnu sumarið 2013. Þór vann báða leikina, 2-1 á Akranesi í byrjun júlí og 1-0 á Þórsvellinum, sem þá hét, seint í september. ÍA féll úr efstu deild um haustið, en Þór endaði í 8. sætinu.
Tveir í röð og brunað upp töfluna
Eftir slaka byrjun hefur lið KA fært sig upp töfluna með tveimur sigrum í röð, en hafði áður náð einu jafntefli í fyrstu fjórum leikjunum. KA vann Þór á nýjum heimavelli Þórs og svo ÍBV á sínum heimavelli eftir þrjú töp í fyrstu þremur heimaleikjunum, á móti Stjörnunni, Víkingi og Keflavík. FH hefur hins vegar ekki unnið sinn fyrsta sigur enn sem komið er, hefur gert tvö jafntefli og situr í 11. sæti deildarinnar með tvö stig að loknum sex umferðum.
- Besta deild karla í knattspyrnu, 7. umferð
Kaplakrikavöllur í Hafnarfirði kl. 17
FH - KA
Þessi lið mættust tvisvar í Bestu deildinni í fyrrasumar, en voru svo hvort í sínum hluta, FH í efri og KA í neðri, í framhaldi deildarinnar í fyrrahaust. KA vann fyrri leikinn 3-2 á Akureyri í lok apríl, en FH vann stórsigur í Kaplakrika í júlí, 5-0.
Bæði liðin eru að koma beint úr tapleik í 16 liða úrslitum Mjólkurbikarkeppninnar og langar eflaust til að bæta fyrir frammistöðuna þar. KA tapaði 1-2 á heimavelli fyrir Ægi, neðsta liði Lengjudeildarinnar, og FH tapaði 5-0 fyrir Fylki á útivelli.