Þegar reynir á það sem við köllum styrk
„Það koma tímabil í lífinu þar sem maður velur ekki sjálfur taktinn. Tímabil þar sem eitthvað breytist og margt af því sem maður var vanur að treysta á virkar ekki lengur á sama hátt og áður. Líkaminn bregst öðruvísi við því sem maður leggur á hann, orkan verður ófyrirsjáanleg og það sem áður var sjálfsagt er það ekki lengur.“
Þannig hefst nýr heilsupistill Guðrúnar Arngrímsdóttur. Hún og Hrafnhildur Reykjalín Vigfúsdóttir, eigendur Sjálfsræktar heilsumiðstöðvar á Akureyri, skrifa pistla fyrir akureyri.net sem birtast aðra hverja viku.
Guðrún heldur áfram:
„Þessi tímabil geta komið til vegna veikinda, meiðsla og ýmissa áskorana og aðstæðna í lífinu. Þetta geta verið stutt tímabil, en þau geta líka dregist á langinn, jafnvel þannig að maður áttar sig á því að ekkert verður alveg eins og áður.
Í slíkum aðstæðum reynir á það sem við köllum styrk, en kannski ekki á þann hátt sem við erum vön að hugsa um hann.“
Pistill Hrafnhildar: Þegar lífið hægir á manni