Fara í efni
Mannlíf

Þarf endilega að verða flinkari, sterkari ...?

Guðrún Arngrímsdóttir fjallar í heilsupistli sem akureyri.net birtir í dag „um kröfurnar sem við setjum á okkur og allt það sem við ætlumst til af okkur sjálfum. Margt af því er í sjálfu sér bæði gott og gagnlegt, en þegar allt er lagt saman getur þetta orðið ansi langur listi. Við eigum helst alltaf að vera á leiðinni eitthvert með okkur sjálf og það sem við erum að gera. Verða flinkari, sterkari, hraustari, afkastameiri, rólegri, skipulagðari og auðvitað miklu betri í að hugsa um okkur sjálf. Það virðist alltaf vera eitthvað sem mætti bæta.“

Guðrún segir það vissulega verkefni fólks í lífinu að hugsa vel um sig og taka ábyrgð á eigin heilsu, „en hvenær varð það að svona stóru verkefni að hugsa vel um sig?“ spyr hún. „Þurfum við endilega að hámarka alla þessa þætti? Og er það endilega betra?“

Pistill Guðrúnar: Þurfum við alltaf að vera að verða betri?