Tex-Mex – matur fyrir vestræna bragðlauka
Stór hluti þess sem Vesturlandabúar þekktu lengi sem „mexíkóskan mat“ var í raun matargerð sem varð til eða í besta falli þróaðist hinu megin við landamærin.
Þetta segir Þráinn Lárusson í stórfróðlegum og skemmtilegum matarpistli dagsins í röðinni MATARÞRÁ-INN þar sem hann fjallar um Tex-Mex. „Það er að mörgu leyti áhugaverð matargerð og ekki ætla ég að gera lítið úr henni,“ segir hann. „Ekta mexíkóskur matur getur verið flókinn og á köflum mjög frábrugðinn þeim mat sem Vesturlandabúar eiga að venjast og fellur alls ekki að smekk allra. Tex-Mex matargerð varð hins vegar aðgengilegri vestrænum bragðlaukum og það var einmitt þessi matargerð sem breiddist víða út, eins og ég nefndi áðan, fyrst undir merkjum mexíkóskrar matargerðar. Því miður.“
Í dag staldrar Þráinn við norðan landamæra Mexíkó en eftir viku liggur leiðin suður yfir landamærin, yfir Río Grande og hann skrifar um mexíkóska matarmenningu.
Pistill Þráins: Mexíkóskur eða Tex-Mex