Tákn sjálfsmyndar og menningar Ítala
„Í dag stendur ítölsk pizza ekki aðeins sem vinsæll réttur heldur sem tákn sjálfsmyndar og menningar Ítala. Hún sameinar einfaldleika og stolt handverk, en á sama tíma er hún tákn fyrir baráttu gegn stöðlun og iðnvæðingu matargerðar. Að baki hverrar ítalskrar pizzugerðar býr saga, þekking og siðir sem lifa áfram í höndum pizzaiolo. “
Þetta segir Þráinn Lárusson í matarpistli sem akureyri.net birtir í dag, fjórða og síðasta pistli Þráins um pizzu, þá ítölsku dásemd sem allir þekkja.
Þráinn segir einnig: „Þótt pizzan hafi farið víða halda íbúar Napólí fast í þá trú að pizzan hafi fæðst þar í borg og að þeirra pizza sé sú eina sanna. Þar sem pizza þeirra er bökuð í viðarkynntum steinofnum fyrir augum gesta get ég ekki annað en tekið undir það á því augnabliki þegar hún kemur út úr ofninum, lifandi, ilmandi og passlega ólögulega fullkomin eins og borgin sjálf.“
- Akureyringurinn Þráinn Lárusson er matreiðslumeistari og hefur í fjöldamörg ár verið áberandi sem athafnamaður í ferðaþjónustu á Austurlandi þar sem hann hefur rekið bæði veitingastaði og hótel. Hann skrifar fjölbreytta pistla um mat fyrir akureyri.net.
Pistill Þráins í dag: Pizza – kameljónið í matargerð!