„Syðra húsið uppá Brekkunni“ 120 ára
„Gilsbakkavegur liggur á norðurbarmi Grófargils. Hvort að gatan dragi nafn sitt af því, að hún liggur eftir bakka Gilsins eða af stórbýlinu Gilsbakka, skal ósagt látið hér.“
Þannig hefst nýr pistill Arnórs Blika Hallmundssonar í röðinni Hús dagsins enda er staldrar hann við á þeim slóðum að þessu sinni. Umfjöllunarefni dagsins er Syðra Melshús, Gilsbakkavegur 3 og pistillinn skemmtilegur og afar fróðlegur sem fyrr.
Arnór Bliki segir: „Neðstu húsin á Gilsbakkavegi standa raunar beint á móti bakhliðum stórhýsa í Miðbænum, þ.e. 6 hæða Hafnarstrætis 93-97 en efsta húsið, Frímúrarahúsið stæðilega, stendur á horninu þar sem mætast Oddeyrargata, Kaupangsstræti og Þingvallastræti. Í gömlum dægurlagatexta Ríó Tríós, Kópavogsbrag, segir á einum stað „Mikið er mjúkur malbikaði spottinn/ enda gerist varla annars staðar betri - kvartkílómetri“. En Gilsbakkavegur er einmitt kvartkílómetri, eða um 250 metra langur. Gatan er skipuð fjölbreyttum og skemmtilegum húsum, sem flest eru byggð á 5. áratug 20. aldar. Elsta húsið er Melshús hið syðra og er það númer 3 við götuna en það er raunar byggt löngu áður en gatan varð til. Það var orðið rúmlega sextugt, þegar Ríó söng um malbikaða spottann í Kópavogi fyrir tæpum 60 árum, enda er það 120 ára í ár. Og þar ber okkur niður að þessu sinni.“
Pistill Arnórs Blika: Syðra Melshús, Gilsbakkavegur 3