Fara í efni
Mannlíf

Landsleikir, Allir með, skautasýning og ganga

Íþróttavikan er nokkuð óhefðbundin miðað við þær upplýsingar sem jafnan eru hafðar með í þessum vikulegu upptalningum akureyri.net. Hlé er á keppni í Bestu deildum karla og kvenna í knattspyrnu vegna landsleikja. En það er fleira á dagskrá íþrótta þó íþróttavikan hafi jafnan einbeitt sér að leikjum Akureyrarliða í boltaíþróttum og íshokkí.

Hér eru nokkrir viðburðir sem fram undan eru, ýmist í boði á Akureyri eða þar sem Akureyringar eiga hlut að máli.

MIÐVIKUDAGUR 3. JÚNÍ - fótbolti

Þór og KA standa saman að verkefni undir heitinu Allir með og bjóða upp á fótboltaæfingar fyrir born með sérþarfir, börn sem til dæmis þurfa meiri stuðning og hentar betur að vera í minni hópum og hafa aðgang að fleiri þjálfurum á æfingu. Öll börn geta tekið þátt á sínum forsendum. Æfingarnar eru byggðar upp sem stöðvar á öðrum helmingi vallarins og skipulögðum æfingum á hinum helmingnum. Æfingarnar byggjast fyrst og fremst á samveru og hreyfingu þar sem þjálfarar reyna að laga æfingarnar að öllum þátttakendum.

  • Allir með fótboltaæfingar
    Boginn miðvikudaginn 3. júní kl. 16:15-17:00

Skráning er á Abler eða á staðnum og er æfingagjaldið 10.000 krónur.

Allir með fótboltaæfingarnar verða í Boganum á miðvikudögum í sumar fram til 19. ágúst. Upplýsingar um æfingarnar veita Linda Guðmundsdóttir, íþróttafulltrúi Þórs, linda@thorsport.is, og Kristján Sturluson, íþróttastjóri KA, kristjan@ka.is.

FÖSTUDAGUR 5. JÚNÍ - fótbolti

Akureyringar eiga tvo fulltrúa í kvennalandsliðinu í knattspyrnu í komandi verkefnum, eins og verið hefur að undanförnu. Þær Sandra María Jessen og María Ólafsdóttir Gros halda senn með landsliðinu til Póllands þar sem Ísland og Úkraína leiða saman hesta sína í næstsíðustu umferð í riðli Íslands í undankeppni HM 2027. 

  • Undankeppni HM kvenna í knattspyrnu 2027
    Stadion Miejski í Póllandi kl. 16:00
    Úkraína - Ísland

Ísland vann fyrri leik liðanna sem fram fór á Laugardalsvellinum í apríl, 1-0. Lokaumferð riðilsins verður þriðjudaginn 9. júní, en þá tekur íslenska liðið á móti heimsmeisturum Spánverja á Laugardalsvellinium.

LAUGARDAGUR 6. JÚNÍ - fótbolti

Tvær frá Þór/KA eru í hópi U19 landslið kvenna í knattspyrnu sem tekur þátt í æfingamóti í Svíþjóð, þær Birgitta Rún Finnbogadóttir og Elísa Bríet Björnsdóttir. U19 landsliðið undirbýr sig nú fyrir lokamót EM sem fram fer í Bosníu-Herzegovínu 29. júní til 10. júlí.

  • Æfingamót U19 í Svíþjóð kl. 13:00
    Ísland - Noregur

Íslenska liðið mætir Svíþjóð í sama móti mánudaginn 8. júní kl. 16:30.

- - -

Akureyringarir Egill Orri Arnarsson, Ásbjörn Líndal Arnarsson, Einar Freyr Halldórsson, Sverrir Páll Ingason og Sigurður Jökull Ingvason eru í hópi U19 landsliðs karla í knattspyrnu sem leikur tvo leiki á næstu dögum í fyrstu umferð undankeppni EM 2027.

  • Undankeppni EM U19 karla í knattspyrnu 2027
    David Petriashvili Stadium í Georgíu kl. 15:00
    Ísland - Svartfjallaland

Íslenska liðið mætir liði Georgíu þriðjudaginn 9. júní kl. 15 í seinni leik sínum í riðlinum.

SUNNUDAGUR 7. JÚNÍ - ganga, listskautar
 
Ferðafélag Akureyrar stendur fyrir vikulegum gönguferðum á sunnudögum kl. 10. Þessar gönguferðir hafa verið á dagskrá frá því í febrúar og verða áfram til loka nóvembermánaðar. Lögð er áhersla á að halda gönguhraða þannig að allir geti fylgt hópnum og er miðað við að ganga 3-5 kílómetra á einni klukkustund. 
 
  • Ferðafélag Akureyrar, Strandgötu 23, kl. 10:00-11:00
Allir eru velkomnir, frítt að slást í hópinn og engin skráning. Boðið er upp á kaffi eftir göngu. 
- - -
Listskautadeild Skautafélags Akureyrar heldur sína árlegu vorsýningu í Skautahöllinni á Akureyri á sunnudag. Þar koma iðkendur saman með töfrandi sýningu, en í þeim hópi eru nokkrir af bestu skauturum landsins.
 
  • Stjörnuryk, vorsýning listskautadeildar SA
    Skautahöllin á Akureyri kl. 17:00-19:00

Nánari upplýsingar um vorsýninguna má finna á Facebook-viðburði deildarinnar.