Sögubrot af 90 árum Ferðafélags Akureyrar
Ferðafélag Akureyrar (FFA) var stofnað árið 1936 og verður 90 ára þann 8. apríl næstkomandi. Haldið verður upp á tímamótin með ýmsum hætti, svo sem fyrirlestrum, skráningu gönguleiða, afmæliskaffi í skála félagsins í Drekagili næstkomandi sumar – og pistlum hér á akureyri.net.
Hjalti Jóhannesson, sem er í ritnefnd Ferða og í afmælisnefnd vegna 90 ára afmælis FFA, skrifaði grein um félagið sem birtist í dag. Fyrsti sögupistillinn kemur fyrir sjónir lesenda á morgun og munu þeir birtast hálfsmánaðarlega á laugardögum fram á vor.
„FFA er áhugamannafélag um útivist sem vill stuðla að hreyfingu og ferðalögum á Íslandi, einkum Norðurlandi og er fjölmennasta deildin innan Ferðafélags Íslands,“ segir Hjalti í grein dagsins. „Í félaginu starfar fjöldi nefnda í kringum verkefni sem unnin eru í félaginu. Félögum hefur fjölgað mikið á síðustu árum og eru núna um 700 talsins.“
Pistill Hjalta í dag: Ferðafélag Akureyrar 90 ára