Mannlíf
Skólasystkinin kölluðu: „mamma þín gaf þig“
20.06.2025 kl. 09:30

„Núna finnst mér ég bara eiga góðar bernskuminningar. Samt var þá margt öðruvísi en gengur og gerist í lífi annarra barna. Ég og nokkur systkini mín vorum sett í fóstur, því foreldrar okkar réðu ekki við barnaskarann.“
Í pistli dagsins birtir Kristín Aðalsteinsdóttir örstutt viðtal sitt við konu sem átti heima í Innbænum á Akureyri þegar hún var barn.
Konan segir meðal annars:
„Pabbi var mjög rólyndur og hugsaði mikið um mig en þegar ég var sex ára sagði hann þó „ég vildi að ég hefði tekið systur þína en ekki þig.“ Hann bað mig afsökunar löngu seinna. Þegar ég heyrði pabba vinkonu minnar tala við hana gat ég fundið hvað honum þótti vænt um hana. Ég öfundaði hana af því. Mig langaði til að pabba eða mömmu þætti vænt um mig. Þegar ég var nýbyrjuð í barnaskóla, man ég eftir því að skólasystkyni mín kölluðu til mín, „mamma þín gaf þig.“ Ég var sautján ára þegar ég átti mitt fyrsta barn og þá var ýtt á mig að gefa barnið. Aldrei, aldrei skyldi það verða.“
Pistill Kristínar: Svipmynd úr bernsku