Fara í efni
Mannlíf

Skógarbotnsplöntur í íslenskum skógum

Þar sem tvö tré koma saman, þar er skógur, segir Sigurður Arnarson í léttum tón í upphafi nýs pistils í röðinni Tré vikunnar. „Aðstæður fyrir annan gróður en tré eru gjörólíkar í og utan við skóga. Sérstaklega ef trén eru fleiri en tvö. Þess vegna er farið dálítið frjálslega með sannleikann í þessari tilvitnun hér í byrjun og sennilega á það sinn þátt í að gera hana svona eftirminnilega,“ segir hann svo.

Birta og sólarljós er öllum grænum plöntum alger nauðsyn. „Þar sem í skóginum vaxa að jafnaði mörg tré verður meiri birta utan við skóginn en víðast hvar inni í honum. Á móti kemur að skógurinn er mun skýlli en berangrið. Innan skógarins verður meiri samkeppni um birtu, næringu og pláss, bæði ofan- og neðanjarðar, en á berangri,“ segir hann. „Að auki skiptir gerð, stærð og aldur skógarins miklu máli hvað varðar skilyrði fyrir gróður í skógi. Allt þetta leiðir til þess að aðstæður fyrir lággróður og runna eru aðrar inni í skóginum en utan hans. Plöntur, sem þróast hafa í skógum, getum við kallað skógarbotnsplöntur. “ Pistill dagsins fjallar um þær.

Meira hér: Skógarbotnsplöntur