Skógar og votlendi eiga margt sameiginlegt

Sigurður Arnarson heggur í dag í sama knérunn og stundum áður í pistlaröðinni Tré vikunnar á vef Skógræktarfélags Eyfirðinga; fjallar um tengsl vatnsauðlindarinnar og skóga. Að þessu sinni skoðar hann fyrst og fremst samspil votlendis og skóga.
„Skógar og votlendi eiga heilmargt sameiginlegt þegar vel er að gáð. Þau eru á meðal mikilvægustu vistkerfa jarðar. Það á ekkert síður við um Ísland en önnur lönd. Þessi vistkerfi tempra vatnsrennsli, draga úr hitasveiflum og minnka hættu á bæði flóðum og þurrkum. Að auki er votlendi undirstaða fjölbreytilegs lífríkis og varðveitir mikið magn næringarefna og kolefnis,“ segir Sigurður í pistlinum. Talið er að 18% til 30% kolefnisforðans í efstu 100 cm jarðvegs á jörðinni sé geymdur í votlendi þótt það þeki ekki nema um 2% til 3% þurrlendis í heiminum. Að auki hefur votlendi og vötn mikið aðdráttarafl fyrir útivist, segir hann.
Meira hér: Skógar og votlendi