Fara í efni
Mannlíf

Skemmtileg bresk hefð eða fágað snobb?

Afternoon tea, eða síðdegiste, er siður sem hefur á síðustu árum farið að sjást æ oftar utan Bretlands og þar á meðal hér á landi. Hótel og veitingastaðir bjóða upp á þriggja hæða bakka með litlum samlokum, enskum skonsum, kökum og tei í postulíni, gjarnan undir formerkjum breskrar fágunar og lúxuss. Þessi aðalsborna hefð virðist mörgum vera gamalgróin enda órjúfanlega tengd Viktoríutímanum. Hún er í raun afsprengi ákveðinna breytinga í neyslumynstri á Englandi á 19. öld.“ 

Þannig hefst vikulegur pistill Þráins Lárussonar um mat. Pistlaröðina köllum við MATARÞRÁ-INN og akureyri.net hvetur lesendur til að gaumgæfa skrif Þráins síðustu mánuði því pistlar hans eru frábærir, bæði fróðlegir og skemmtilegir.

Þráinn heldur áfram: 

„Á 18. öld var dinner, aðalmáltíð dagsins, yfirleitt borðuð mun fyrr en síðar varð, oft ekki seinna en síðdegis. Þegar komið er fram á 19. öld færðist þessi máltíð sífellt aftar hjá breskri yfirstétt og gat jafnvel verið seint um kvöld. Þá myndaðist langt bil milli létts hádegisverðar og kvöldmatar. Á því bili varð til ný venja: síðdegiste.“