Fara í efni
Mannlíf

Sigur SA Víkinga í mikilli markaveislu

Eistnesi landsliðsmaðurinn Daniil Fursa er happafengur fyrir lið SA Víkinga. Hann skoraði þrennu og átti tvær stoðsendingar í 8-6 sigri á Fjölni. Mynd: Rakel Hinriksdóttir.

SA Víkingar buðu upp á aðra markaveislu í leik gærdagsins á Ofurhelgi Íshokkísambandsins í Toppdeild karla.. Að þessu sinni dugði það til sigurs, niðurstaðan varð 8-6 sigur á Fjölni. 

Fjölnismenn náðu tveggja marka forystu á stuttum kafla skömmu eftir miðjan fyrsta leikhluta með mörkum frá Hektori Hrólfssyni og Hilmari Sverrissyni þar sem aðeins liðu 33 sekúndur frá því að leikur hófst að nýju eftir fyrra markið þar til það seinna kom. 

Akureyringar létu þessa rúmu hálfu mínútu ekki trufla sig. Emil Alengård þjálfari tók leikhlé og nokkrum mínútum síðar komu tvö mörk frá SA Víkingum og enn styttra á milli þeirra en marka Fjölnis. Baltasar Hjálmarsson skoraði bæði mörkin, það fyrra þegar SA var manni fleiri og það seinna aðeins 21 sekúndu eftir að leikur hófst að nýju eftir fyrra markið.

Fjölnir náði aftur forystunni eftir rúma mínútu í öðrum leikhluta með marki Kristjáns Jóhannessonar. Aftur jöfnuðu SA Víkingur skömmu síðar þegar Daniil Fursa skoraði eftir snögga sókn. Ekki löngu síðar náðu þeir forystu í fyrsta skipti í leiknum með marki frá Bjarti Westin. Sú forysta stóð þó aðeins í stutta stund því Jere Koikkalainen jafnaði í 4-4 fyrir Fjölni, en Daniil Fursa svaraði um hæl fyrir SA og kom þeim aftur í forystuna áður en annar leikhlutinn var hálfnaður. Níu mörk komin og leikurinn rétt hálfnaður. Akureyringar voru ekki hættir og bætti Unnar Hafberg Rúnarson við sjötta markinu seint í öðrum leikhluta og Baltasar Hjálmarsson því sjöunda örskömmu og kláraði þar með þrennuna.

Markaveislunni var þó ekki lokið. Daniil Fursa kláraði sína þrennu í byrjun þriðja leikhlutans með áttunda marki SA. Jere Koikkalainen skoraði tvívegis fyrir Fjölni og minnkaði muninn í tvö mörk, en þar við sat og niðurstaðan tveggja marka sigur SA Víkinga í miklum markaleik.

Leikurinn var kannski ekki beint leikur markvarðanna eða varnarleiks. Bæði skiptu markvörðum sínum út í miðjum leik og hlutfall varinna skota ekki hátt. Fjölnismenn náðu samtals 12 skotum á mark og rataði pökkurinn sex sinnum í markið. SA Víkingar áttu tvöfalt fleiri skot, alls 24 og skoruðu úr einu af hverjum þremur.

Fjölnir - SA 6-8 (2-2, 2-5, 2-1)

Helstu tölur úr leiknum:

Fjölnir

Mörk/stoðsendingar: Jere Koikkalainen 2/1, Hektor Hrólfsson 1/1, Hilmar Sverrisson 1/0, Kristján Jóhannesson 1/0, Falur Guðnason 0/1, Andri Helgason 0/1.
Varin skot: Tuomas Heikkonen/Þórir Aspar 16 af 24 (66,67%).
Refsingar: 6 mínútur.

SA

Mörk/stoðsendingar: Daniil Fursa 3/2, Baltasar Hjálmarsson 3/0, Bjartur Westin 1/1, Unnar Hafberg Rúnarsson 1/1, Hafþór Andri Sigrúnarson 0/4, Aron Ingason 0/1, Gunnar Arason 0/1.
Varin skot: Róbert Steingrímsson/Jakob Jóhannesson 6 af 12 (50%).
Refsingar: 6 mínútur.

Leikskýrslan (atvikalýsing)

Staðan í Toppdeild karla

Næst:

  • Laugardagur 14. nóvember
    Skautahöllin á Akureyri kl. 16:45
    SA - Fjölnir