Fara í efni
Mannlíf

Hreint mark Shawlee í öruggum sigri SA

Shawlee Gaudreault hefur aðeins tvisvar þurft að sjá á eftir pökknum í markið hjá sér í vetur, einu sinni í opnum leik og einu sinni í vítakeppni.

Kvennalið Skautafélags Akureyrar í íshokkí vann öruggan og verðskuldaðan sigur á liði Skautafélags Reykjavíkur þegar liðin mættust í Toppdeildinni í Skautahöllinni í Laugardal í gærkvöld. SA-konur skoruðu fjögur mörk án þess að SR tækist að svara. SA er á toppi Toppdeildarinnar með tíu stig.

Það var Silvía Rán Björgvinsdóttir sem opnaði markareikninginn fyrir SA með laglegu skyndisóknarmarki þar sem hún lék á varnarmann og markvörð SR og skoraði af stuttu færi. Eins marks forysta eftir fyrsta leikhlutann. Tvö mörk litu dagsins ljós í öðrum leikhluta. Fyrst var það Hilma Bóel Bergsdóttir sem kom SA í 2-0 og svo Eyrún Garðarsdóttir sem skoraði laglegt mark og kom SA í 3-0. Sólrún Assa Arnardóttir kláraði svo dæmið með fjórða marki SA snemma í þriðja leikhlutanum.

Leikmenn SR komust lítið áleiðis og náðu lítið að ógna marki SA. Það sést meðal annars á fjölda markskota því ef talningar markadómara eru réttar hafa sjaldan sést tölur eins og í leiknum í gær. Leikmenn SA áttu 54 skot að marki og varði Julianna Thomson því 50 skot í leiknum. Rólegra var í hinu markinu því Shawlee Gaudreault þurfti aðeins að verja sjö skot til að halda markinu hreinu. Einu sinni var það þó stöngin sem bjargaði Shawlee.

SR - SA 0-4 (0-1, 0-2, 0-1)

Helstu tölur úr leiknum:

SR

Mörk/stoðsendingar: Engin.
Varin skot: Julianna Thomson 50 af 54 (92,59%).
Refsingar: Engar.

SA

Mörk/stoðsendingar: Eyrún Garðarsdóttir 1/1, Hilma Bóel Bergsdóttir 1/0, Silvía Rán Björgvinsdóttir 1/0, Sólrún Assa Arnardóttir 1/0, Aþena Elínrós Guðlaugsdóttir 0/1, Herborg Rut Geirsdótti 0/1, Kolbrún María Garðarsdóttir 0/1, Magdalena Sulova 0/1.
Varin skot: Shawlee Gaudreault 7 af 7 (100%).
Refsingar:  2 mínútur.

Leikskýrslan (atvikalýsing)

Staðan í Toppdeild kvenna

Hreint mark í 167 mínútur

Lið SA hefur byrjað tímabilið vel og unnið þrjá af fyrstu fjórum leikjum sínum, tapaði einum í vítakeppni, en hefur í fjórum leikjum fengið á sig eitt mark í opnum leik. Í fyrsta leik sigruðu þær SR 2-0, síðan Fjölni 12-1, töpuðu 0-1 fyrir SR í vítakeppni eftir markalausan leik og framlengingu og unnu svo Fjölni 4-0 í gærkvöld.

Reykjavíkurliðunum hefur gengið illa að koma pökknum í markið hjá Akureyringum það sem af er tímabilinu. Eina markið sem liðið hefur fengið á sig í opnum leik til þessa var í fyrsta leikhluta í 12-1 sigrinum á Fjölni í öðrum leik tímabilsins. Markverðir SA, Shawlee Gaudreault og Marey Viðja Sigurðardóttir, hafa því haldið markinu hreinu samfleytt í 167 mínútur og 31 sekúndu í opnum leik. Meirihlutann af þeim tíma varði Shawlee markið, en Marey Viðja á einn leikhluta, 20 mínútur, af þessum tíma.

Næst:

  • Laugardagur 7. nóvember
    Skautahöllin á Akureyri kl. 16:45
    SA - Fjölnir