Fara í efni
Mannlíf

Sama húsið, Háagerði og Syðri-Tjarnir

Arnór Bliki Hallmundsson er staddur í Eyjafjarðarsveit í nýjum pistli í þeirri vinsælu röð, Hús dagsins. Hann markaði sér þá stefnu í upphafi árs, eins og áður hefur verið nefnt, að taka fyrir hús á Akureyri og nágrenni, sem eiga stórafmæli á þessu ári, 100 ára og eldri. Að þessu sinni fjallar hann um bæinn Syðri-Tjarnir en fleiri koma reyndar við sögu.

„Skammt norðan vegamóta Miðbrautar og Eyjafjarðarbrautar eystri standa Syðri- og Ytri- Tjarnir. Standa bæjarhúsin í brekkunni skammt neðan vegarins,“ segir Arnór Bliki í upphafi pistilsins. „Á báðum bæjunum standa um aldargömul steinsteypuhús, en svo vill til, að húsið á Syðri-Tjörnum tilheyrði lengst af annarri jörð og bar annað nafn en hefur þó ætíð staðið á sama stað. Húsið var nefnilega reist sem íbúðarhús á jörðinni Háagerði, sem lögð var undir Syðri-Tjarnir í lok 20. aldar,“ segir hann og vert er að geta þess að enn eitt bæjarnafnið kemur við sögu þessa 102 ára steinhúss í Staðarbyggð!