Saga pizzunnar er sveipuð mikilli dulúð
„Það má segja að saga pizzunnar sé sveipuð mikilli dulúð enda fáir réttir í veröldinni sem eiga sér jafn margar sögur, mótsagnir og mýtur.“
Þannig hefst matarpistill Þráins Lárussonar sem akureyri.net birtir í dag. Það er þriðji pistill Þráins af fjórum um pizzu, ítölsku uppfinninguna vinsælu, sem Íslendingar kalla stundum flatböku, eða bara pitsu. Þráinn heldur áfram:
„Tvær sögur eru þó algengastar. Annars vegar er sú saga að pizzan hafi verið matur fátækra og orðið til sem bjargræði. Flestir gátu orðið sér út um hveitilúku og tómat, og síðan bakað í steinofni eða jafnvel á heitu grjóti. Það sé ástæðan fyrir að ekta pizza sé svona þunn – hitinn eigi að koma að neðan.
Hin sagan er af Margheritu drottningu og Umberto I konungi sem heimsóttu Napólí árið 1889. Pizzubakari að nafni Raffaele Esposito, eigandi Pizzeria di Pietro e basta così, á að hafa bakað þrjár mismunandi pizzur fyrir þau. Ein þeirra var í litum ítalska fánans: tómatar, mozzarella og basil. Drottningunni þótti hún góð og Esposito nefndi hana því henni til heiðurs – Pizza Margherita.“
- Akureyringurinn Þráinn Lárusson er matreiðslumeistari og hefur í fjöldamörg ár verið áberandi sem athafnamaður í ferðaþjónustu á Austurlandi þar sem hann hefur rekið bæði veitingastaði og hótel. Hann skrifar fjölbreytta pistla um mat fyrir akureyri.net.
Pistill Þráins í dag: Hvenær verður brauð pizza?