Saga „ketchup“ er löng, flókin og skemmtileg
Fáar sósur í heiminum eru jafn útbreiddar og ketchup sem Íslendingar hafa kosið að kalla tómatsósu, segir Þráinn Lárusson í vikulegum matarpistli sem akureyri.net birtir í dag. Þráinn kemur víða við í fjölbreyttum, fróðlegum og skemmtilegum pistlum sem hann hefur boðið lesendum upp á síðustu mánuði.
Um sósuna, umfjöllunarefni dagsins, segir Þráinn: „Þú finnur hana á borðum skyndibitastaða, í eldhúsum heimila og hún er tryggur fylgifiskur með pylsum, hamborgurum og frönskum kartöflum um allan heim. Samt er merkilegt hversu lítið fólk veit í raun um þessa sósu. Flestir telja hana einfaldlega sæta tómatsósu frá Bandaríkjunum. En saga ketchup er miklu eldri, flóknari og skemmtilegri en svo. Raunar hafði ketchup upphaflega ekkert með tómata að gera.“
- Pistill Þráins: Er hún tómatsósa eða ketchup?