Fara í efni
Mannlíf

Sæborg – eitt elsta íbúðarhús Glerárþorps

„Þegar rætt er um eldri byggðir Akureyrar eða gömul hús dettur e.t.v. flestum í hug Innbærinn, Oddeyrin eða elstu hlutar Brekkunnar. Og gleymum ekki, að í Grímsey og Hrísey fyrirfinnast einnig gamlar og rótgrónar byggingar. En í Glerárþorpi eða „Þorpinu“ leynast einnig gömul hús.“

Þannig hefst nýr pistill Arnórs Blika Hallmundssonar í röðinni Hús dagsins.

Hann segir að öfugt við byggðina í t.d. Innbænum og Oddeyri myndi elstu húsin í Glerárþorpi ekki samstæðar heildir eða götumyndir heldur standi dreift og á stangli innan um yngri byggð. „Ástæða þess er einfaldlega sú, að hér er um að ræða gömul býli eða hús í dreifbýli, sem síðar urðu umlukin þéttbýli. Víðs vegar innan Glerárþorps var stundaður myndarlegur búskapur en fæst voru þau stórbýli hvað varðar skepnufjölda og umsvif,“ segir í pistlinum.

„Norðan og vestan ósa Glerár, þar sem hún lýkur sinni rúmlega 20 kílómetra vegferð úr botni samnefnds dals og hefur m.a. á árþúsundum, skilað efni sem byggt hefur upp Gleráreyrar og Oddeyrina, lúrir Sandgerðisbót í krika milli klapparholta. Heitir sunnanmegin, því lítt geðfellda nafni, Hengingarklöpp og uppi á lágum hól eða leiti, fast suðaustur af, stendur eitt af elstu íbúðarhúsum Glerárþorps, látlaust og vinalegt bárujárnsklætt timburhús að nafni Sæborg. Það mun byggt árið 1906.“

Pistill Arnórs Blika: Sæborg í Glerárþorpi