Orri Páll: Nemendur teknir sturlungatökum
Orri Páll Ormarsson kemur víða við í Orrablóti dagsins. Hann staldrar við í fjörugum íþróttatímum í Þelamerkurskóla „í blábyrjun áttunnar“, farið er í kappakstursleik, rokkleik og fótbolti er nefndur eins og stundum áður – en þó ekki beint.
Mannvalið er mikið: Siggi og Nonni, Óli heppni, Heiddi danski, Dóri stóri, Stebbi stóri og Stebbi litli, Niki Lauda, Jón Óskar Ísleifsson, Gene Simmons, Denis Rodman, James Hunt og Birgir Karl Birgisson lúftbassaleikari svo einhverjir séu nefndir..
Akureyringurinn Orri Páll er blaðamaður á Morgunblaðinu til fjölda ára. Hann mætir til leiks á akureyri.net annan hvern föstudag með vinsæla pistla þar sem hugurinn reikar gjarnan aftur um áratugi. Sú er einmitt raunin í dag.
Orrablót dagsins: Nemendur teknir sturlungatökum