Mannlíf
Orri Páll: Er hægt að spila fótbolta svona?
10.07.2026 kl. 11:30
Heimsmeistarakeppnin í knattspyrnu stendur nú sem hæst eins og þorra landsmanna er án efa kunnugt um. Orri Páll Ormarsson er því á knattspyrnubuxunum í Orrablóti dagsins og ætti engum að koma á óvart. Orri Páll er blaðamaður á Morgunblaðinu en pistlar hans fyrir akureyri.net birtast annan hvern föstudag.
„Hvur röndóttur, frændi. Er hægt að spila fótbolta svona?“ sögðum við Sturla Sighvatsson gáttaðir hvor við annan, þar sem við sátum yfir einum af fyrstu leikjunum á HM í knattspyrnu 1982 heima hjá honum í Breiðholtinu, skrifar Orri í upphafi pistilsins.
Hann kemur víða við; segir meðal annars frá skátengingu sinni við hið fræga lið Brasilíu sem tók þátt í heimsmeistarakeppninni 1982, „besta lið sögunnar sem aldrei varð heimsmeistari“.
- Orrablót dagsins: Er hægt að spila fótbolta svona?