Opið hús á Ásum – aðstaðan stækkuð
Í tilefni þess að byggður hefur verið glæsilegur skáli við gistiheimilið Ása í Eyjafjarðarsveit verður opið hús á staðnum á morgun, laugardag 13. júní milli kl. 15 og 17, þar sem gestum býðst að kynna sér aðstæður eftir stækkunina og þiggja léttar veitingar.
Gistiheimilið Ásar er lítið gistiheimili sem leggur áherslu á heimilislega gistingu, persónulega þjónustu og rólega sveitastemmningu. Ásar eru um 10 km innan Akureyrar, í Eyjafirðinum austanverðum, og auk þess að bjóða upp á gistingu fyrir ferðamenn hefur staðurinn notið vaxandi vinsælda fyrir alls konar viðburði. Með tilkomu nýja skálans myndast aðstaða fyrir enn stærri viðburði en áður og nú verður hægt að bjóða upp á aðstöðu fyrir fundi og hvers kyns veislur fyrir allt að 30 manns.

Andrúmsloftið á Ásum er afar hlýlegt og mikil vinna lögð í hvers kyns smáatriði sem gleðja augað.
Umsagnir gesta á Ásum hafa verið ákaflega jákvæðar og staðarhaldararnir, hjónin Hrefna Laufey Ingólfsdóttir og Árni Sigurðsson, fá meðal annars mikið lof fyrir fyrirtaks veitingar, þar sem áhersla er lögð á heimagert góðgæti af ýmsu tagi. Í fréttatilkynningu frá þeim kemur fram að boðið verður upp á mat og kaffiveitingar á fundum og viðburðum og þau verði á staðnum til að veita fyrsta flokks þjónustu. Með haustinu er síðan ætlunin að bjóða upp á fjölbreytta viðburði af ýmsu tagi, t.d. kvöldverðarhelgar, brönshelgar, dekurhelgar og prjónahelgar.
Þegar nær dregur jólum byrjar jóladekrið og þá verður boðið upp á jólakvöldverði og jólabrönsa alla daga vikunnar. Að sögn þeirra hefur jóladekrið notið vaxandi vinsælda undanfarin ár og með tilkomu nýja skálans verður hægt að taka á móti ennþá stærri hópum en áður á Ásum.