Fara í efni
Mannlíf

Sveitahátíðin Fram í fjörð – MYNDIR

Sigurður Steingrimsson, formaður Búsögu - búnaðarsögusafns Eyjafjarðar, í húsakynnum sem félagið hefur afnot af á Saurbæ. Myndir: Þorgeir Baldursson

Sveitahátíðin Fram í fjörð var haldin í Eyjafjarðarsveit síðastliðinn laugardag og var margt á dagskrá víða um sveitina frá morgni og fram eftir degi.

Þorgeir Baldursson leit við á nokkrum stöðum með myndavélina eins og sjá má í meðfylgjandi syrpu. Þorgeir kom við í Holtseli, þar sem 20 ára afmæli ísbúðarinnar á staðnum er einmitt fagnað um þessar mundir, hann rak einnig inn nefið á tónleikum Svavars Knúts hjá Maríu Pálsdóttur á Hælinu - setri um sögu berklanna í Kristnesi og á fornbílasýningu í Búvélasafninu á Saurbæ.