Ögurstund hjá SA, KA gæti farið í undanúrslit
Skíðamót, handbolti, körfubolti og íshokkí á dagskrá dagsins. Tveir heimaleikir í boði, KA gegn ÍBV í handbolta karla og Þór gegn Fjölni í körfubolta kvenna. Þá geta úrslitin í einvígi SA og SR í Toppdeild kvenna í íshokkí ráðist í dag. Skíðamóti Íslands lýkur í dag.
Samhliða svig í Hlíðarfjalli
Skíðamóti Íslands lýkur í Hlíðarfjalli og í Ólafsfirði í dag. Keppt verður í samhliða svigi í Hlíðarfjalli og liðaspretti í skíðagöngu í Ólafsfirði.
Dagskráin í Hlíðarfjalli í dag:
-
Kl. 10:00 – Start
Verðlaunaafhending að móti loknu við Strýtuskála
Dagskráin í Ólafsfirði í dag:
Liðasprettur, frjáls aðferð
- Kl. 11:00 – 13–16 ára stúlkur
- Kl. 11:20 – 13–16 ára drengir
- Kl. 11:40 – Konur 17+
-
Kl. 12:10 – Karlar 17+
KA getur komið sér í undanúrslit
Annar leikur KA og ÍBV í átta liða úrslitum Olísdeildarinnar í handbolta er á dagskrá á Akureyri í dag. KA vann í Eyjum á miðvikudag, í tvíframlengdum leik. Vinna þarf tvo leiki til að fara áfram í undanúrslit þannig að KA getur í dag komið sér áfram í undanúrslit Olísdeildarinnar með sigri.
- Olísdeild karla í handbolta
Átta liða úrslit, leikur 2
KA-heimilið kl. 15
KA - ÍBV - Útsending: Handboltapassinn í Sjónvarpi Símans
Áskriftarsjónvarp
Umspil í 1. deild kvenna að hefjast
Umspil fjögurra liða um laust sæti í Bónusdeild kvenna í körfubolta á næsta tímabili hefst í dag. Þór endaði í 2. sæti deildarinnar og mætir liði Fjölnis, sem endaði í 3. sætinu. Sigurliðið í einvígi þessara liða mætir svo sigurliði úr viðureignum Hamars/Þórs og Selfoss í úrslitaeinvígi um sæti í efstu deild.
- Bónusdeild/1. deild kvenna í körfubolta
Umspil, undanúrslit, leikur 1
Íþróttahöllin á Akureyri kl. 16
Þór - Fjölnir - Útsending: KKÍ TV á Sýn
Áskriftarsjónvarp
SA verður að vinna í dag
Fjórði leikur í úrslitakeppni Toppdeildar kvenna í íshokkí er á dagskrá í Skautahöllinni í Laugardal í dag, en leiknum far frestað um einn dag í framhaldi af frestun leiks á fimmtudag á Akureyri. Eftir tap á heimavelli á föstudag verður lið Skautafélags Akureyrar að vinna í dag til að fá tækifæri til að vinna einvígið á heimavelli í næstu viku. Vinni SR í dag tryggja Reykvíkingar sér Íslandsmeistaratitilinn í fyrsta skipti í sögu kvennaliðs félagsins, og taka báða stóru titlana í Laugardalinn.
- Toppdeild kvenna í íshokkí
Úrslit, leikur 4
Skautahöllin í Laugardal kl. 16:45
SR - SA - Útsending: icehockeyiceland.tv
Áskrift að rás eða stökum leikjum
Vormót ÍSS í Skautahöllinni
Seinni keppnisdagur Vormóts Skautasambands Íslands er í Skautahöllinni á Akureyri í dag. Dagskrá dagsins má sjá á myndinni hér að neðan.
