Fara í efni
Mannlíf

Þórsarar sigruðu annað árið í röð

Þórsarar fagna eftir að Yann Emmanuel Affi skoraði úr síðasta vítinu og tryggði sigurinn. Frá vinstri: Ágúst Eðvald Hlynsson, Affi, Kristófer Kristjánsson og Aron Birkir Stefánsson markvörður. Myndir: Skapti Hallgrímsson

Þórsarar sigruðu KA-menn í Boganum í kvöld í úrslitaleik Kjarnafæðismóts karla, árlegs æfingamóts sem haldið er af Knattspyrnudómarafélagi Norðurlands. Staðan að loknum hefðbundnum 90 mínútum var 1:1, strax var gripið til vítaspyrnukeppni og þar höfðu Þórsarar betur. Hvort lið nýtti fjögur víti af fyrstu fimm og eftir bráðabana unnu Þórsarar 8:7. Það var varnarjaxlinn Yann Emmanuel Affi sem tryggði Þór sigur í mótinu með síðustu spyrnunni.

Þetta er annað árið í röð sem Þór vinnur Kjarnafæðismótið. Akureyrarfélögin áttust líka við í úrslitaleiknum í fyrra og þá þurfti einnig vítaspyrnukeppni til að knýja fram úrslit. KA-menn höfðu unnið mótið sjö ár í röð þegar Þórsarar stöðvuðu sigurgöngu þeirra á síðasta ári.

Það var Bjarni Guðjón Brynjólfsson sem gerði mark Þórs á 57. mínútu með stórkostlegu skoti utan vítateigs. Eftir að nýr leikmaður Þórs, Isaac Atanga, reyndi skot sem fór í varnarmann hrökk boltinn út fyrir teig og Bjarni Guðjón lét vaða viðstöðulaust; þrumaði að marki, boltinn small í stönginni fjær og skaust þaðan í netið.

Það var svo Jakob Héðinn Bjarnason sem jafnaði fyrir KA með marki af stuttu færi skömmu fyrir leikslok eftir þunga sókn.

Fleiri myndir á morgun.

Sigurreifir Þórsarar eftir sigurinn á KA í Boganum í kvöld.