Fara í efni
Mannlíf

Nýta mætti hafþyrni meira en nú er gert

Sigurður Arnarson fjallar um hafþyrni í nýjum pistli í röðinni Tré vikunnar á vef Skógræktarfélags Eyfirðinga. Þetta er þriðji pistill Sigurðar um hafþyrni; í þeim fyrsta lýsti hann tegundinni og sagði frá helstu einkennum hennar, því næst sagði hann frá berjunum og ræktun þeirra og í lokapistlinum fer hann yfir notkun hafþyrnis á Íslandi. „Þar ber hæst að tegundina má nota til landgræðslu þar sem hún hefur jarðvegsbætandi áhrif. Ekki veitir af í okkar nitursnauða landi enda þrífst hafþyrnir við skilyrði sem henta fáum tegundum,“ segir hann meðal annars.

Meira hér: Notkun og mikilvægi hafþyrnis