Fara í efni
Mannlíf

Norðurgata 33 – fimmta 100 ára „afmælisbarnið“

Arnór Bliki Hallmundsson heldur áfram að fræða lesendur um hundrað ára gömul hús í pistlaröðinni Hús dagsins. Í þeim þriðja í röð er Arnór Bliki staddur í Norðurgötunni og fjallar að þessu sinni um húsið númer 33 sem stendur á horni Norðurgötu og Fjólugötu.

Hann segir í pistlinum: „Það var þann 22. mars árið 1926 að bygginganefnd Akureyrar bókaði eftirfarandi: Framlagt erindi frá Sigurði Björnssyni frá Hrísey dags. 6. þ.m. þar sem hann biður um leyfi til að byggja steinsteypt íbúðarhús við væntanleg gatnamót norðaustur af húsi no. 31 í Norðurgötu. Húsið á að vera að stærð 7x7 mtr. tvílyft á lágum grunni með lágu risi (Bygg.nefnd. Ak. 1926: nr. 582). Væntanleg gatnamót eru þá gatnamót Norðurgötu og Fjólugötu, en húsið stendur þar á horninu og aðkoman að því raunar frá Fjólugötu.“ 

Pistill Arnórs Blika: Norðurgata 33