Fara í efni
Mannlíf

Nesti á hverju strái og „pilsur með öllu!“

„Lítið hefur farið fyrir djammi, næturlífi og almennum ólifnaði í blótum mínum til þessa. Það á sér afskaplega eðlilegar skýringar; foreldrar mínir eru á lífi og barnabörnin sum hver orðin læs. Þetta blót mun því heldur ekki fjalla um það efni – heldur veganesti.“

Þannig hefst Orrablót dagsins; pistill Orra Páls Ormarssonar, blaðamanns á Morgunblaðinu. Orri Páll skrifar pistil – Orrablót – annan hvern föstudag fyrir akureyri.net.

„Veganesti voru á hverju strái þegar ég var að alast upp á Akureyri. Við erum að tala um gömlu góðu sjoppurnar með lúgunum. Eins og að segja þurfi ykkur það!

Til að byrja með man ég best eftir gamla Leirunestinu og sérstaklega nestinu til móts við flugvöllinn en þar var oft áð á leið fram í fjörð enda leiðin mun lengri á þeim tíma, það er í akstri en ekki kílómetrum. Þetta var þröngur malarvegur allt á enda. Þá var nú gott að pylsa sig upp í Flugvallarnestinu (sem hét eitthvað allt annað) áður en lengra var haldið. Reyndar ætti maður frekar að tala um að „pilsa sig upp” en í sjöunni stóð lengi vel á flennistóru skilti á gafli nestisins: Pilsur með öllu!“