Fara í efni
Mannlíf

Merkileg trjátegund sem skiptir oft um kyn

Sigurður Arnarson hefur annað slagið fjallað um hlyntré í pistlum á vef Skógaræktarfélags Eyfirðinga. Pistlar hans birtast alla miðvikudaga og akureyri.net birtir brot úr hverjum pistli til að vekja athygli á skrifunum. „Þar er af nægu að taka enda er ættkvíslin stór. Tré vikunnar er hlyntegund frá Norður-Ameríku og við getum lofað að þetta er ekki seinasti pistill okkar um hlyntré,“ segir hann í pistli dagsins.

„Stundum er það þannig að stórum ættkvíslum er gjarnan skipt upp í minni hópa eða deildir (latína: sectio) eftir skyldleika. Það á einmitt við um hlynina eins og við höfum áður nefnt í pistli um næfurhlyn,“ skrifar Sigurður. „Í þessum pistli beinum við kastljósinu einkum að einni tegund sem er ágætur fulltrúi fyrir sína deild. Í seinni hluta pistilsins segjum við frá því að innan hópsins þekkist að tré skipti um kyn. Það geta reyndar fleiri tré gert þótt það teljist til undantekninga, en þessir hlynir fara aðra leið en flest önnur tré og gera þetta nokkuð oft. Það gerir þessi tré alveg einstök á heimsvísu. Til að útskýra það nánar er í þessum pistli einnig fjallað lítillega um kyn blóma sem tré geta myndað.“