Fara í efni
Mannlíf

Matarmenning eða þjóðernishyggja?

Þráinn Lárusson hefur komið víða við í stórfróðlegum og skemmtilegum pistlum í röðinni MATARÞRÁ-INN sem akureyri.net hóf að birta í upphafi ársins. Um miðjan september beindi hann sjónum að Louisiana ríki í Bandaríkjunum og sagði frá tveimur mjög ólíkum matargerðum, Cajun og Creole og í pistli dagsins er hann aftur vestanhafs. Nú fjallar Þráinn um Soul food, matarmenningu svartra Bandaríkjamanna í Suðurríkjunum.

„Rætur hugtaksins soul liggja í menningarheimi svartra Bandaríkjamanna og þar virðist tónlistin hafa gegnt lykilhlutverki,“ skrifar Þráinn, en smám saman varð soul að eins konar menningarlegu auðkenni svartra Bandaríkjamanna. „Hugtakið birtist ekki bara í soul music, heldur líka í soul brother og soul sister og festist að lokum einnig við matargerð þeirra. Matur sem hafði verið eldaður í svörtum samfélögum í margar kynslóðir fékk nú nafn og varð um leið sýnilegri sem sérstakur hluti af menningararfi svartra Bandaríkjamanna: „Soul food.““

Þráinn nefnir að sagan hafi reyndar byrjað miklu fyrr, „með nauðungarflutningum Afríkubúa yfir Atlantshafið og þróast síðan í Suðurríkjum Bandaríkjanna við samruna matarhefða, eldunaraðferða og hráefna frá Vestur- og Mið-Afríku, Evrópu og frumbyggjum Ameríku,“ segir hann.

„Maturinn sem varð til við þessar aðstæður tengdist lengi þrælahaldi, fátækt og lágri samfélagsstöðu og naut því lítillar virðingar utan þeirra samfélaga þar sem hann var hluti af daglegu lífi. Eftir afnám þrælahalds héldu matarhefðirnar áfram að þróast meðal svartra Bandaríkjamanna í Suðurríkjunum.“