Líkaminn bregst oft við á undan huganum
„Það eru ákveðnir tímar í lífinu þar sem við pönkumst áfram einfaldlega vegna þess að við þurfum að gera það. Við mætum í vinnu, sinnum fjölskyldunni, klárum verkefnin og höldum utan um allt það sem þarf að halda utan um. Erum dugleg og klárum það sem við höldum að þurfi að klára. Og oft gerum við það vel. Svo vel að fólkið í kringum okkur tekur kannski ekki einu sinni eftir því að við séum undir miklu álagi. Svo vel að við föttum það jafnvel ekki sjálf að við séum að ganga of nærri okkur.“
Þannig hefst nýr heilsupistill Hrafnhildar Reykjalín Vigfúsdóttur. Hún og Guðrún Arngrímsdóttir, eigendur Sjálfsræktar heilsumiðstöðvar á Akureyri, skrifa pistla fyrir akureyri.net sem birtast aðra hverja viku.
En, bætir Hrafnhildur við, „líkaminn tekur eftir því“.
Pistill Hrafnhildar: Líkaminn geymir meira en við höldum